top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

19 ára afmælisganga á Keilisbörn, Hrafnafell og Keili með sixpensara og axlabönd !

Tue, May 19

|

Keilir

Fögnum 19 ára afmæli fjallgönguklúbbsins með því að mæta á þriðjudagsæfingu með sixpensara og axlarbönd. Grípum gleðina og skálum í freyðivíni, gosi og konfekti í tilefni dagsins á ekta Toppfaraþriðjudagsæfing um sjaldfarin fjöll með öðruvísi leið á fjölfarið fjall, ekta við !

19 ára afmælisganga á Keilisbörn, Hrafnafell og Keili með sixpensara og axlabönd !
19 ára afmælisganga á Keilisbörn, Hrafnafell og Keili með sixpensara og axlabönd !

Dagsetning og tími

May 19, 2026, 5:00 PM – 10:00 PM

Keilir, Keilir, 191, Iceland

Nánari upplýsingar

Fögnum 19 árum á fjöllum og göngum eina af okkar uppáhalds öðruvísi leiðum á Keili þar sem gengið er á hnúkana norðan hans og farin óhefðbundin leið upp á Keili og svo hefðbundið niður og til baka.


Mætum með xispensara og axlarbönd til að skapa háríðarstemningu og skálum í freyðivísi og gosi með smá konfekti á tindi keilis í tilefni þess að við séum í alvörunni ennþá að ganga saman á fjöll í 19 ár !


Gamlir og nýir klúbbmeðlimir hjartanlega velkomnir með í þessa göngu og klúbbmeðlimir mega endilega taka gesti með sem þeir bera þá ábyrgð á.


Þjálfarar mæta með freyðivín, gos og konfekt og best ef allir koma með freyðivínsglasið sitt með og annað hátíðlegt að smekk. Þjálfarar verða með auka plastglös fyrir þá sem gleyma glasi, ekkert stress.


Sjá allt um göngu kvöldsins á vefsíðu okkar www.fjallgongur.is og umræður á lokaða fb-hópi Toppfara.


Gerum ráð fyrir…


Deildu hér

bottom of page