top of page

Fri, Apr 28

|

#Föstudagsfjallgöngur

Bjólfell - Föstudagsfjall sem bíður frá því í febrúar

Mjög falleg, stutt og frekar létt en mjög fjölbreytt ganga á áberandi fjall við Heklurætur sem skartar miklu landslagi þegar upp á það er komið og býður upp á dulúðugt fjallavatn í bakaleiðinni.

Registration is Closed
See other events
Bjólfell - Föstudagsfjall sem bíður frá því í febrúar
Bjólfell - Föstudagsfjall sem bíður frá því í febrúar

Time & Location

Apr 28, 2023, 8:00 AM – 4:00 PM

#Föstudagsfjallgöngur, Bjólfell, 851, Iceland

About the Event

Uppfært 23. apríl 2023: 

Skráðir eru x manns + báðir þjálfarar. 

Nýjustu tilkynningar:

*Við erum ákveðin í að fara í þessa göngu föstudaginn 28. apríl nánast óháð veðurspá og þátttökufjölda þar sem við eigum eftir að taka tvö föstudagsfjöll. Geri fb-viðburð og við fylgjumst með veðurspá fram eftir vikunni en langtímaspáin er mjög góð fyrir föstudag. 

*Færum ferðina til fös 21/4 með fyrirvara um að eingöngu verður farið ef góð veðurspá og ekki sé ganga á laugardeginum Þvert yfir Ísland legg 8.

*Færum þessa ferð til fös 14/4 og nýtum þann föstudag EF veðurspá er góð og EF ekki viðrar á Botna-skyrtunnu á laugardeginum en sú ferð gengur fyrir NB. Höldum áfram að hafa þessa göngu á hliðarlínunni á föstudegi þegar loksins kemur helgi þar sem ekki viðrar til göngu aðra helgardagana og föstudagurinn spáir vel, það kemur einhvern tíma að því :-) 

*Færum þessa göngu um viku til fös 31/3 þar sem Kráka og félagar verður laug 25/3. 

*Kráka og félagar hafa forgang laug 25/3 en ef ekki viðrar á laug þá förum við á Bjólfellið fös 24/3 en annars bíður það þar til næsti lausi föstudagur kemur með góðu veðri og það er ekki ganga þá helgi. Veðrið ræður sem sé för eins og alltaf :-) 

*Færum til fös 24. mars þar sem Kleifarvatnshringleið gengur fyrir laug 11. mars og Þríhyrningur er fös 17. mars. 

*Frestum til fös 10. mars þar sem Þorgeirshyrna er á laug 4. mars og laugardagsgangan gengur fyrir. 

*Frestum til fös 3. mars v/veðurs EF ekki er ganga þá helgi, annars síðar þegar veður gefst á föstudegi.

*Gott að lesa um Föstudagsfjöllin hér:  https://www.fjallgongur.is/fostudagsfjollin

*Til að skrá sig (ef ekki í Toppförum) þarf að senda þjálfara tölvupóst en ekkert skráningargjald er í þetta föstudagsfjallgönguverkefni, eingöngu verð fyrir hverja göngu í senn. 

*Athugið að til vara eru föstudagarnir á undan þessum í febrúar (10/2 og 17/2) þar sem við munum hugsanlega nýta þá ef veðurspá er mjög góð og það er ekki Toppfaraferð á laugardegi þá helgi því gott veður er ekki sjálfgefið á þessum árstíma.

Verð:

Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi Toppfara og þá sem skráð hafa sig í Föstudagsfjallgönguhópinn með tölvupósti skv. leiðbeiningum hér: https://www.fjallgongur.is/fostudagsfjollin

Kr. 10.000 fyrir aðra en Toppfara sem ekki hafa skráð sig formlega í Föstudagsfjöllin með tölvupósti.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 16:00.

Aksturslengd:

Rúmlega 1,5 klst. Fólksbílafært að sumri en betra að vera á hærri bílum að vetri til. Metum bílfæri þegar nær dregur ferð.  

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg að Landvegamótum en þar er beygt til vinstri inn veg 26 framhjá Galtalækjarskógi en fljótlega eftir hann er beygt til hægri inn veg 268 og ekið framhjá bæjunum Næfurholti og Haukadal þar sem bílar eru skildir eftir á malarstæði við fjallsrætur Bjólfells. Heyrum í bændum með bílfæri vikuna fyrir ferð. 

Hæð:

Um 456 m.

Hækkun:

Um 500 m miðað við 106 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 8 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp grýtta, aflíðandi brekku til að byrja með þar til ofar er komið þar sem aðeins þarf að brölta í grjóti efst á greiðfærri leið upp á tind. Mikið útsýni er af tindinum og Hekla blasir við í sláandi návígi. Heilmikið landslag er uppi á Bjólfelli og munum við ganga í rólegheitunum í gegnum klettaborgir og stórgrjót og fara niður norðan megin þar sem þræða þarf góða leið gegnum hjalla, grjót og skriður. Metið eftir vetrarfærinu en helst farið alla leið niður og þrætt meðfram fjallinu til baka og komið við hjá dularfulla vatninu sem lúrir milli fjalla þarna í þessum dulda fjallasal. Farið yfir kjarri vaxinn suðurás Bjólfells í lokin að bílunum aftur.

Erfiðleikastig:

Um 1-2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir mjög stutta en gefandi dagsgöngu um mjög fjölbreytt fjall sem gefur magnaða sýn yfir hulinn fjallasal í rótum Heklu með eldfjallið nánast í seilingarfjarlægð. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér:  

Share This Event

bottom of page