top of page

Sun, Jun 18

|

Laugarvatn

Frá Reyðarbörmum um Laugarvatnsfjall í Bláskógabyggð legg 9 #ÞvertyfirÍsland

Spennandi ný leið yfir Laugarvatnsfjalls þar sem endað er í ilmandi skógi Bláskógabyggðar eftir könnunarleiðangur á Selöldu og fleiri viðkomustaði á leiðinni.

Registration is Closed
See other events
Frá Reyðarbörmum um Laugarvatnsfjall í Bláskógabyggð legg 9 #ÞvertyfirÍsland
Frá Reyðarbörmum um Laugarvatnsfjall í Bláskógabyggð legg 9 #ÞvertyfirÍsland

Time & Location

Jun 18, 2023, 7:30 AM – 6:00 PM

Laugarvatn, Laugarvatn, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 17. júní kl. 18: 

Skráðir eru 10 manns en einhverjir eiga eftir að staðfesta:  Ása, Birgir, Dína, Inga Guðrún, Kolbeinn, Sigríður Lovísa Jónsdóttir gestur, Sigrún E. gestur, Sjöfn Kr., Öyvind + báðir þjálfarar. 

Nýjustu tilkynningar:

*Fólksbílafært þar sem við breytum leiðarvali úr því ekki náðust nægilega margir jeppar í þessa ferð. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 7:30  á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18:00

Aksturslengd:

Um 1,5 klst.  Eingöngu jeppar/jepplingar. 

Akstursleiðarlýsing:

Ekið til Þingvalla og áfram upp Lyngdalsheiðina til Laugarvatns og helmingur bíla skilinn eftir í Bláskógabyggð og ekið til baka að Reyðarbörmum þar sem gangan hefst.  Bílar sóttir við Reyðarbarma á heimleið frá Laugarvatni. 

Hæð:

Um 636 m á Laugarvatnsfjalli.

Hækkun:

Um 500 miðað við 212 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 16 - 18km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið í sandi, grjóti, grasi og mosa upp og niður ása, hóla og hæðir og endað í ilmandi skóglendi Bláskógabyggðar. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar langa dagsgöngu með ágætis brölti upp alls kyns hóla, hæðir og brekkur í margbreytilegu landslagi.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá Fb-viðburð hér: 

Share This Event

bottom of page