
Sat, Aug 26
|#FjöllinaðFjallabaki
Háalda, Hnúðalda og Brennisteinsalda um Suðurnámur og Grænagil #FjöllinaðFjallabaki
Mögnuð ferð í einstaklega litríku og formfögru landslagi ofan við Landmannalaugar þar sem við tökum stórkostlegan hring um litríka fjallið ofan við Frostastaðavatn og svo yfir á ávölu fjallsbungurnar sem skreyta Laugavegsgönguleiðina og endum í hinu gullfallega Grænagili til Lauga aftur.

Time & Location
Aug 26, 6:00 AM – 8:00 PM
#FjöllinaðFjallabaki, Landmannalaugar, 851, Iceland
About the Event
Uppfært 8. maí 2023:
Skráðir eru x manns: + báðir þjálfarar.
Nýjustu tilkynningar:
*Jeppar eða jepplingar inn Dómadalsleið/Hrauneyjaleið, fáum rútu ef við náum 20 manns og þá bætist rútugjald við verð ferðar.
Verð:
Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mætt hafa í tvær tindferðir síðustu 2 mánuði NB.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.
Kr. 12.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 15.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Þjálfarar.
Brottför:
Kl. 6:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 20:00 en síðar ef við ákveðum að fara aðeins í heita lækinn í Landmannalaugum fyrir heimferð.
Aksturslengd:
Um 3+ klst. Jeppar eða jepplingar (fara þarf yfir tvö vatnsföll).
Akstursleiðarlýsing:
Ekið um Suðurlandsveg að Landvegamótum og tekin vinstri beygja inn veg 26 að Dómadal og ekið í um 1 klst. um Dómadalsleið / Landmannaleið í Landmannalaugar.
Hæð:
Um 1.116 m.
Hækkun:
Um 900 m miðað við 545 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 20 - 22 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .
Göngutími:
Um 8 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Gengið að mestu á slóða um mjög fjölbreytt landslag upp og niður fjögur fjöll í sandi og yfir lækjarsprænur.
Erfiðleikastig:
Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir langa en ágætlega greiðfæra dagsgöngu á slóða að mestu.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
Viðburður á fb hér: