top of page

Fri, Sep 22

|

Hlöðufell, 806, Iceland

Hlöðufell

Mjög stutt en nokkuð brött ganga í grjótskriðu til að byrja með upp á svipmikinn fjallsstapa sem stelur alltaf senunni með einstöku útsýni yfir Langjökul, fjallakransinn norðan við Brúarárskörð og til afskekktustu fjallstinda Þingvalla.

Registration is Closed
See other events
Hlöðufell
Hlöðufell

Time & Location

Sep 22, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM

Hlöðufell, 806, Iceland

About the Event

Uppfært 21. september 2023 kl. 15:00: 

Skráðir eru 7 manns en einhverjir eiga eftir að staðfesta: Aníta, Leiknir,  aggi, Sighvatur, Tinna, Þórkatla, Örn.

Nýjustu tilkynningar:

*Eingöngu jeppar eða jepplingar komast inn Skjaldbreiðarveg.

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði sem deila æfingagjöldum mæta.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 8:00  á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  16-17:00

Aksturslengd:

Um 2 - 2,5 klst. Jeppar eða jepplingar.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið til Þingvalla og inn Uxahryggjaleið og loks Skjaldbreiðarveg frekar seinfarinn og langan jeppaslóða þar til komið er að Hlöðufelli og þá ekinn smávegis kafli inn með fjallinu að suðurendanum þar sem gangan hefst. 

Hæð:

Um 1.222  m.

Hækkun:

Um 850 m miðað við 449 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 6 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp frekar bratta en færa brekku í grjóti til að byrja með og svo aflíðandi leið upp og niður klettahjalla og hæðir í heilmiklu landslagi alla leið á tindinn. 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta en snarpa dagsgöngu með ágætis brölti upp bratta, grýtta brekkur og svo aflíðandi leið á fjallinu að tindinum.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Viðburður á fb hér:  (9) Hlöðufell | Facebook

Share This Event

bottom of page