top of page

Sat, Jan 13

|

Snæfellsnesfjöllin

Riddara - prjónapeysu - spariganga á Kinnarhyrnu, Axlarhyrnu og Tunguhyrnu Snæfellsnesi

Riddarapeysu - prjónapeysu - kristals - spariganga á fjallshyrnur á Snæfellsnesi sem fáir ganga á þar sem prjónlesið okkar verður í forgrunni og við skálum með sparinesti í eintómri gleði.

Riddara - prjónapeysu - spariganga á Kinnarhyrnu, Axlarhyrnu og Tunguhyrnu Snæfellsnesi
Riddara - prjónapeysu - spariganga á Kinnarhyrnu, Axlarhyrnu og Tunguhyrnu Snæfellsnesi

Time & Location

Jan 13, 2024, 8:00 AM – 5:00 PM

Snæfellsnesfjöllin, Axlarhyrna, 356, Iceland

About the Event

Uppfært 30. október 2023: 

Skráðir eru x manns: + báðir þjálfarar

Nýjustu tilkynningar:

*Færum þessa ferð fram í janúar vegna liðþófaaðgerðar Báru þjálfara (fjallgöngubann í 2 mánuði). Örn býður upp á mjög spennandi göngur í nóv og des í staðinn en látum könnunarleiðangur eins og þennan bíða þar til báðir þjálfarar komast. 

*Fólksbílafært.

*Mætum í riddarapeysum, prjónapeysum og öllu prjónuðu eins og hægt er (vettlingar, húfur, pils, hattar o.s.frv.) og tökum með okkur sparidrykk, spariglas og sparinesti til að skála fyrir prjónlesinu okkar á fjöllum, bara gaman. Tökum fallegar prjónapeysumyndir í göngunni og njótum. 

*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður og metum þegar nær dregur hvort þörf verður á jöklabroddum og ísexi. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  17:00.

Aksturslengd:

Um 2 klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg F1, gegnum Borgarnes og beygt stuttu síðar til vinstri inn Snæfellsnesið um F54 og sá vegur ekinn þar til beygt er til hægri upp Fróðarheiði og bílum lagt við afleggjara á miðri leið. 

Hæð:

Um 420 m á Axlarhyrnu, 400 m á Tunguhyrnu og 260 m á Kinnarhyrnu.

Hækkun:

Um 660 m miðað við 132 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 10 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið um heiðarland í sandi, grjóti og mosa á tilraunakenndri leið fram á fjallsbrúnir og upp söndugar hlíðar hyrnanna þriggja og farin einfaldari leið til baka. Hugsanlega snjór yfir öllu saman og þá koma keðjubroddar sér vel og hugsanlega verða jöklabroddar og ísexi nauðsynlegur búnaður einnig, metið þegar nær dregur. 

Erfiðleikastig:

Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu en á tilraunakenndri leið um upp á þrjár fjallshyrnur með ágætis brekkum í sandi, grjóti og mosa. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

FB-viðburður: 

Share This Event

bottom of page