top of page

Sat, Oct 05

|

Laxárgljúfur

Þjórsárgljúfur frá Sultartanga upp á Búðarháls legg 14 #þvertyfirÍsland

Greiðfær leið á vegi frá Sultartangavirkjun upp á hinn margumtalaða Búðarháls með Sultartangalón á hliðarlínunni og svo gljúfur Þjórsár þegar ofar dregur á leið okkar fjórtánda legginn yfir landið.

Þjórsárgljúfur frá Sultartanga upp á Búðarháls legg 14 #þvertyfirÍsland
Þjórsárgljúfur frá Sultartanga upp á Búðarháls legg 14 #þvertyfirÍsland

Time & Location

Oct 05, 2024, 8:00 AM – 8:00 PM

Laxárgljúfur, Laxárgljúfur, 804, Iceland

About the Event

Uppfært 18. júní 2024:

Skráðir eru x manns: + Bára og Örn þjálfarar.

Mikilvægar tilkynningar: 

*Ferjum bíla milli upphafs- og endastaðar gönguleiðar þar sem stutt er á milli í raun og handhægt að ná í bílana eftir göngu. Þjálfarar kanna hvort leiðin sé ekki örugglega jepplingafær upp á Búðarháls svo ekki þurfi jeppa í þessa ferð. 

*Ef við erum nálægt 16 manns, þá gætum við fengið rútu og þá hækkar verðið í samræmi við það. 

*Mynd fengin að láni af vefsíðu hér: Photo: Sultartangalón | Gönguferðin album | Ruth og Þráinn | Fotki.com, photo and video sharing made easy. (eftir að fá svar frá þeim NB). 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össuri, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 20 - 21:00.   

Aksturslengd:

Tæplega 2,5 klst. að Sigöldu þar sem gangan hefst og rúmlega 2,5 klst. að Búðarhálsi þar sem gangan endar. 

Jepplingafært en sjáum þegar nær dregur hvort þarf jeppa efsta kaflann á Búðarhálsi.  

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg um þjóðveg F1 um Skeið og Þjórsárdal að gestabílastæði við Sultartangavirkjun. 

Hæð:

Um 678 m.

Hækkun:

Um 491 m miðað við 270 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 24 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið á þjóðvegi F26 frá Sultartangavirkjun að Tungná og yfir hana á brú og þaðan upp á Búðarháls á jeppaslóða. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í góðu gönguformi fyrir langa en fljótfarna og greiðfæra dagsgöngu á malbikuðum vegi og svo jeppaslóða.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð einnig á opinni fb-síðunni www.facebook.com/fjallgongur.is = (20+) Facebook 

Share This Event

bottom of page