top of page

Sat, Jun 03

|

Hvolsvöllur

Útigönguhöfði í Þórsmörk um Réttarfell og Vesturhatt og Hvannárgil

Mjög spennandi ganga á eitt svipmesta fjallið í Þórsmörk þar sem við skreytum uppgönguleiðina með tveimur tindum gangandi frá Álfakirkju og niðurleiðina með glæsilegu, þröngu Hvannárgilinu.

Útigönguhöfði í Þórsmörk um Réttarfell og Vesturhatt og Hvannárgil

Time & Location

Jun 03, 7:00 AM – 6:00 PM

Hvolsvöllur, Suðurland, via road, Þórsmerkurvegur, 861 Hvolsvöllur, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 13. apríl 2023:

Skráðir eru x manns: + báðir þjálfarar. 

Nýjustu tilkynningar:

*Eingöngu jeppar fara í þessa ferð. Pöntum rútu ef meira en 20 manns melda sig ákveðna í þessa ferð og þá bætist rútugjald við. 

*Röðum okkur í jeppa þegar nær dregur ferð. Jepplingar komast ekki þar sem keyra þarf yfir ár inn að Álfakirkju í Þórsmörk.

*Tökum vaðskó og þurrklút ef vaða skyldi þurfa Hvanná í Hvannárgili í bakaleiðinni. 

*Þjálfarar ætla að fara könnunarleiðangur þessa leið þar sem Hvannárgilið er sjaldfarin viðbót við Útigönguhöfða og ef okkur líst vel á leiðina þá höldum við áætlun en til vara verður að fara upp á Morinsheiði  og fram á Heiðarhorn þegar komið er niður af Útigönguhöfða og ganga síðasta og gróðursælasta kafla Fimmvörðuhálsleiðarinnar til baka í bílana. Sú útfærsla yrði líklega um 13 km í vegalengd og hækkun um 850 m og mjög flott leið en þekkt og fjölfarin og flestir í hópnum búnir að fara hana áður. Spáum í þetta saman fram að ferð, skemmtilegast er að fara nýjar slóðir.

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

EF við pöntum rútu þá bætist rútugjald við, skoðum það ef fleiri en 20 manns melda sig.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 7:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18:00.

Aksturslengd:

Tæpar 3 klst. Jeppar eingöngu NB.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið frá Össuri Grjóthálsi 5 um þjóðveg 1 með wc-stoppi á Hvolsvelli og þaðan ekið áfram þjóðveg 1 þar til beygt er inn til vinstri um Þórsmerkurleið við Seljalandsfoss og ekið þar jeppaslóða alla leið að Álfakirkju þar sem er gott bílastæði, þaðan sem við leggjum af stað gangandi. 

Hæð:

Um  m.

Hækkun:

Um 700 m miðað við  224 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 11 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 6 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp grónar brekkur Réttarfells og Vesturhattar á slóða og yfir á Útigönguhöfða sem er nokkuð brattur upp vestan megin og niður austan megin um grýttar móbergsbrekkur, en austurslóðinn er mun sjaldfarnari og brattari (flestir snúa við til baka sömu leið en við viljum helst alltaf fara hringleið). Þegar niður er komið af Útigönguhöfða austan megin er fundin leið niður í Hvannárgil þar sem þræða þarf krókastíga út allt gilið á grónum stíg að mestu, en á þessum kafla gætum við þurft að vaða ána til að komast áfram og því betra að taka vaðskó og þurrklút meðferðis. Stórkostlegt útsýni er af tindunum á fyrri hluta leiðarinnar yfir á alla Fimmvörðuhálsleiðina frá hálsinum og niður í Þórsmörk sem blasir við okkur og mjög gaman að sjá hana frá þessu sjónarhorni. Síðari hlutinn gefur nýja upplifun af Þórsmörk í gróðursælt, þröng gil sem liggur frá Heljarkambi og niður á áraurarnar sem smám saman opnast niður við Álfakirkju.  Þá skreyta jöklarnir og fjöll Þórsmerkur leiðina sem fyrr og fá engin orð því lýst hvernig tilfinning það er að ganga um töfraland Þórsmerkur, sama hversu oft maður gengur á þessum slóðum. Þessi staður á Íslandi er einfaldlega engum líkur !

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir miðlungslanga og greiðfæra leið að mestu á slóða en þó með nokkru brölt sjaldfarnari leið niður af Útigönguhöfða austan megin og í Hvannárgili.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér: 

Share This Event

bottom of page