Írafell, Hádegisfjall og Skálafellsháls kvöldið fyrir almyrkvann
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- Aug 12
- 2 min read
Æfing nr. 898 þriðjudaginn 11. ágúst 2026

Í þriðja sinnið gengum við á þriðjudagskveldi á fjallaþrennuna sem rís austarlega í Kjósinni sunnan megin...

Frábær mæting... 16 manns...

Dásamlegt veður... milt, lygnt, hlýtt, þurrt...

Heilmikil hækkun en í ljúfu landslagi og því var þetta hörkuæfing þó greiðfær væri...

Meðalfellið og Sandfell í Kjós hér í baksýn...

Hádegisfjall hér nær vinstra megin og Skálafellsháls hægra megin stærri og hærri... Írafellið var þeirra lægst og mælædist 268 m hátt...

Komin fram á brúnina á Írafelli og stefnan tekin á Hádegisfjallið...

Möðruvallaháls er ennþá eftir...

Írafell hér í baksýn...

Rennandi tandurhreint vatn rennandi niður hlíðarnar... hvílík forréttindi að búa hér...

Batman var settur í band þar sem hann tók ekki vel á móti nýja hundinum, honum Loka... sem er 5 ára og svipuð blanda og Batman, Border Collie og íslenskur fjárhundur... en þeir vorun svo fljótlega búnir að slíðra sveðrin að mestu... og virtust ná sáttum þegar leið á gönguna...

Skyggni yfir að Þingvallavatni og lengra til austurs...

Hæsti punktur dagsins... 599 m hæð á Skálafellshálsi... en Hádegisfjallið mældist 377 m hátt...

Hér var stífur vindur og frekar svalt svo við ákváðum að finna betri stað fyrir nesti...

Móskarðahnúkar hér vinstra megin... Múli, Trana, Heimrahögg, Fremrahögg og svo Möðruvallaháls... við þurfum að taka þessa tinda við tækifæri... búin að ganga á þá alla nema Möðruvallaháls...

Sólbjart til norðvesturs... en yfir okkur var skýjað... og á morgun er spáð rigningu... einmitt þegar almyrkvinn verður kl. 17:45... grátlegt...

Silla, Stína, Sighvatur, Bjarni Kr., Einar nýliði og Loki 5 ára með honum, Þorleifur, Örn, Linda, Inga, Björg, Sjöfn Kr., Hörður, Brynjar, Kolbeinn, Batman og Bára tók mynd... Loki var ljúfur og flottur hundur og vonandi semst þeim strákunum... eða kallinum og drengnum vel í næstu göngu... og á mynd vantar nýlíðann Maríu Elísabetu sem sneri við af Írafelli þar sem hún var á leið á næturvakt...

Fórum svipaða leið niður og slepptum alfarið að ganga í gegnum bæjarhlaðið á Írafelli í samráði við bóndann sem þjálfari hringdi í fyrir nokkrum dögum...

Falleg birta og farið að kvölda þegar á leið niðurleiðar...

Ljúft og hollt og gott...

Írafellið... í hlíðum þess var skínandi góð kindagata sem er ágætt að fara í bakaleiðinni... en þar sem við nenntum ekki að setja hundana í band þar sem kindur voru í dalnum... ákváðum við m.a. að fara Írafellið í bakaleiðinni líka...

Mildi þessa kvölds fangast vel á þessari mynd...

Sólsetrið skreytti síðasta kafla kvöldsins...

Gullið og friðsælt kvöld með meiru...

Við vorum á undan áætluðum göngutíma... vel af sér vikið í 16 manna hópi...

Alls 7,3 km á 3:06 klst. upp í 599 m hæð með alls 621 m hækkun úr 132 m upphafshæð...
Frostastaðavatn og 8 tinda fjallakransinn kringum það er næstu helgi... laugardaginn 15. ágúst... það verður veisla uppi á hálendinu !




Comments