Af því við erum 19 ára þá gengum við á 19 fjöll á 19 dögum ! #19fjöllá19dögum
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- 7 days ago
- 7 min read
Toppfaraáskorun í maí mánuði 2026
Þjálfarar skoruðu á klúbbmeðlimi að ganga á 19 fjöll, fell eða tinda á 19 samfelldum dögum í maí mánuði. Ganga mátti á fleiri en einn tind í sömu göngu og eins upp sama fjallið oftar en einu sinni og eina skilyrðið var að alls yrðu 19 tindar gengnir á 19 daga tímabili hvenær sem var í maímánuði.
Þátttakan var frábær og tóku alls 8 manns þátt.
Sjá lýsingar og lista hvers og eins hér fyrir neðan í stafrófsröð, hver annarri skemmtilegri og glæsilegri.
Chr var dregin út og fékk árgjald í vinning enda er listinn hennar svakalegur en hún tók meðal annars 9 tinda Mosó þann 1. maí einsömul á ferð, til hamingju !
Aníta:

NÍTJÁN
Innilegar hamingjuóskir elsku Bára, Örn og Toppfaraáhangendur með nítján árin. Það er ekki amalegt að tilheyra svona ævintýraklúbbi með áskoranablæti.
Árið er farið að einkennast af því að ætla ekki að taka þátt í áskorun en gera það svo samt. Sorrý… þessar áskoranir allar eru bara of gómsætar.
22 toppar á 19 dögum
01.05. Hrútaborg og Tröllakirkja 15km og 1407m hækkun
03.05. Úlfarsfell 3,4km og 200m hækkun
05.05. Úlfarsfell 3,4km og 200m hækkun
09.05. Sveinstindur og Eystri Hnappur 21km og 1588m hækkun
11.05. Úlfarsfell 3,4km og 200m hækkun
14.05. Nípa og Geithóll 7.06km og 575m hækkun
15.05. Hafrahlíð, Lali, Reykjaborg, Þverfell, Bæjarfell 8km og 530m hækkun
17.05. Akrafjallshringur; Geirmundartindur, Jókubunga, Háihnúkur 13km og 770m hækkun
18.05. Reykjaborg, Lali, Hafrahlíð 7km og 280m hækkun
19.05. Æsustaðafjall og Reykjafell 5.82km og 313m hækkun
= 87.08km og 6063m hækkun
Öræfajökull fær bikarinn sem geggjaðasti dagurinn en Hrútaborg og Tröllakirkja fylgja fast á eftir enda báðir dagar á jöklabroddum í príli og veseni. Sá fyrri með frábærum félögum í öryggi línunnar en sá seinni ein í rötunaræfingum.
Þriðja sætið fær Akrafjallshringurinn af einni ástæðu; ég var á betri tíma en þeir sem Bára nefnir ‘Toppfarajaxlana’. Ég er stundum ekki í lagi .
Sko… mig hefur lengi langað að skottast þennan hring. Sá svo á heimasíðu Toppfara að ‘Toppfarajaxlar’ færu þetta á 3klst.
Halló… struns!!! 2:43 + 9 heilar mínútur í pissu/fata/mynda/vatns/óþarfastopp… tótal 2:52. Ég hefði náttlega átt að sleppa þessum andsk stoppum… rugl bara.
Takk fyrir enn eitt vesenið.
Bára:

Við Batman tókum þessa áskorun í nefið að þessu sinni og komum sjálfum okkur á óvart með því að ná 20 tindum á 12 dögum en dagskráin var nokkuð þétt í öðrum verkefnum í lífinu í þessum mánuði og því vorum við hæstánægð að ná þessu... eða þ.e.a.s. ég... Batman var bara alsæll með þessi fjallgöngulæti í eiganda sínum allt í einu dag eftir dag án þess að stoppa nánast... en hundar skilja samt meira en maður heldur... :
Fjall 1: Helgafell í Mosó - 2,7 km
Fjall 2 -7: þann 9 maí: Hafrahlíð, Reykjaborg, Þverfell, Torfdalshryggur, aftur Þverfell og loks Bæjarfell þann 9. maí - 11,2 km
Fjall 8: Úlfarsfell frá Sólbakka þann 10. maí - 2,8 km
Fjall 9: Helgafell í Mosó þann 11. maí - 2,8 km
Fjall 10: Mosfell - 4,0 km
Fjall 11: Úlfarsfell frá efra bílastæði - 4,0 km
Fjall 12: Skarðsfjall í Landsveit - 8,2 km
Fjall 13 - 15: Litla Skarðsmýrarfjall, "Hengladalabrúnir" og Kýrgilshnúkur með Toppförum - 12,2 km
Fjall 16-17: Æsustaðafjall og Reykjafell - 4,8 km
Fjall 18 - 20: Keilisbörn, Hafrafell og Keilir með Toppförum - 10,1 km
Mjög skemmtileg áskorun sem virðist verða léttari með árunum sem er stórskrítið... kom á óvart að ná að klára þetta á 12 dögum en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi og minn listi bliknar í samanburði við annarra þátttakenda sem gefur mér alltaf svo mikinn innblástur...
Upp úr standa göngurnar með Toppförum og svo var dýrmætt að ná Skarðsfjallinu með Erni í sveitasælunni af því hann nennir aldrei með mér á fjall og þokusúldin um Mosófjöllin var reyndar líka alger yndislaugardagsganga þar sem við Batman þurftum að rata eftir minni... allt telur þetta inn í hjarta og sál og gerir mann vonandi að betri manni smám saman :-)
Upp úr stendur á hverju ári djúpstætt þakklæti til klúbbmeðlima fyrir að kveikja á perunni og vera til í alla þessa vitleysu, grín og glens, að taka hvorki sig né okkur of alvarlega en samt kunna að meta snilldina og töfrana... aðmeta næsta mann að verðleikum og njóta samverunnar einmitt með þeim sem eru manni æðri og betri á einhvern hátt því þannig lærir maður... og að njóta lífsins saman úti í óbyggðunum þrátt fyrir óvissu, erfiðleika og annan endi á deginum en lagt var upp með sem reynir alltaf aðeins á þolrifin en gerir okkur úthaldmeiri og þolbetri gagnvart óvæntum uppákomum í lífinu almennt... öll þessi óvæntu ævintýri standa alltaf upp úr... ekki þessi sem stóðust excelskjalið frá upphafi til enda og buðu hvorki upp á ófyrirsjáanleika né óvæntar aðstæður sem varð að leysa úr... pant óvissuna... aldrei fyrirsjáanleikann...
Birgir Martin:

Afmælisáskorunin.
Ætlaði mér ekki að taka þátt, nóg af öðrum hamagangi en breytti um á seinustu stundu.
Þurfti því að hafa hraðar hendur og fætur, hér er svo afraksturinn :
14.maí Esja Þverfellshorn 7 km og 740 m hækkun.
17.maí Litla Skarðsmýrarfjall. Kýrgilshryggur og Ölhryggur
11,3 km. og 620 m. 3 toppar.
18.maí Esja Þverfellshorn.
19.maí Keilir, Keilisbörn og Hrafnafell. 9,6 km og 530 m
3 toppar.
20.maí Krísuvíkurdagur :
Vatnshlíðarhorn, Bæjarfell og Arnarfell 5 km og 450 m hækkun
3 toppar.
21.maí. Fálkaklettur í Esju +
Grímmannsfell hringur 9,8 km
Og 500 m hækkun. 2 toppar.
23.maí Úlfarsfell tvær ólíkar leiðir
7,6 km og 520 m hækkun +
Mosfell 3,8 km og 220 m
3 toppar.
24.maí Hafravatnshringurinn. Allt heila klabbið ... 8 km og 440 m
3 toppar.
Ætlaði síðan að bæta við Hafrafelli við Vatnaleiðina í gær í lok veiðidags við Selvallavatn. Hótun um að loka göngunum eyðilagði það fyrir mér ...
Þetta urðu því strípaðir 19 toppar á 14 dögum, þar af 8 göngudagar. Mun bæta við um helgina en læt þetta gott heita.
Mjög skemmtileg og hvetjandi áskorun, hef tekið þátt 4 sinnum á 5 ára veru í þessum ágætu samtökum
Mættu samt vera fleiri þáttakendur, þó fleiri nú en seinast.
Læt nokkrar myndir fylgja með, tók ekki svo marga
Chr:

Hér fyrir neðan er yfirlitið mitt varðandi 19 fjöll á 19 dögum.
01.05.2026 Úlfarsfell, Lali, Reykjaborg, Þverfell, Torfadalshryggur, Grímannsfell, Reykjafell, Æsustaðafjall, Helgafell 33,5 km
02.05.2026 Írafell, Skálafellsháls 9,4 km
03.05.2026 Sandfell, Mælifell, Stapafell 16,9 km
14.05.2026 Úlfarsfell 4x (alltaf mismunandi leiðir) 14,4 km
17.05.2026 Ölkelduhnúkur, Tjarnarhnúkur, Lakahnúkur, Hrómundartindur, Kyllisfell 17,4 km
19.05.2026 Keilisbörn, Hrafnafell, Keilir 9,0 km
Halldóra Kristins:

Kæru Toppfarar innilega til hamingju með 19 ára afmælið. Það er alltaf gott að trítla á fjall, hvort sem er ein eða í góðum hóp. Takk fyrir að leyfa mér að flækjast með ykkur
Mér tókst að klára afmælisáskorunina og hér eru mína ferðir.
29.5.2026 Lali og Reykjaborg 2 4,97
28.5.2026 Helgafell Mos 1 2,16
27.5.2026 Úlli tröppur 1 3,39
26.5.2026 Esjan 1 4,22
25.5.2026 Mosfell 1 3,79
22.5.2026 Hengill 1 7,64
21.5.2026 Mosfell 1 3,90
19.5.2026 Keilir, Keilisbjörn,Hrafnf. 3 9,60
18.5.2026 Reykjafell Æsustaðafell 2 6,71
17.5.2026 Úlli, tvisvar 2 6,87
15.5.2026 Úlli blár stikur 1 4,05
14.5.2026 Úlli tröppur 1 3,40
13.5.2026 Akrafjall Hátindur 1 5,37
12.5.2026 Úlfarsfell.. Tröppur 1 3,53
SAMTALS 19 69,60.
Hjörtur:

Nítján
Já tek undir það heilshugar með Aníta Sigurbergsdóttir, innilega til lukku með daginn. Eiginlega synd að maður komi svona seint inn í þetta. Ég get tekið þátt í þessari áskorun með það sem er mætt í hús í dag.
26/23 toppar á 19 dögum, erfitt að henda reiður á þessu nákvæmlega. Allar villur í mælingum eru Garmin að kenna, ekki mér
01.05 - Þríhyrningur 9km og 824m
02.05 - Mosfell 3,8km og 241m
03.05 - Móskarðshnúkar allir og niður Gáruhnúk 8,5km og 823m
04.05 - Stardalshnúkar 4,5km og 346m
05.05 - Múli og Bakhæðir um Stardal 6,3km og 275m
06.05 - Mosfell 3,8km og 244m
07.05 - Mosfell 3,8km og 233m
08.05 - Mosfellx2 7km og 417m
09.05 - Mosfell 3,8km og 225m
10.05 - Skálafell frá Stardal 9,3km og 621m
11.05 - Mosfell 3,8km og 245m
12.05 - Háihnúkur Akrafjall 5,4km og 506m
13.05 - Mosfellx2 7,1km og 402m
14.05 - Mosfellx2 7,1km og 397m
15.05 - Mosfell 3,9km og 226m
16.05 - Esja Þverfellshorn 8,1km og 761m
17.05 - Litla Skarðsmýrarfjall, "Hengladalabrúnir" og Kýrgilshnúkur 11,8km og 563m
18.05 - Mosfell 3,8km og 229m
19.05 - Keilir, Keilisbörn og Hrafnafell 9,6km og 454m
= 120,5km og 8032m hækkun.
Ég er síðan bara innilega þakklátur að Hr. Putti þarna hafi valdið/ollið því að ég gekk í þennan hóp
Sighvatur:

19 fjöll á 19 dögum í tilefni af 19 ára afmælisári Toppfara:
Það er fínt að hafa svona áskorun til að hvetja mann áfram.
Hérna kemur listinn minn fyrir 19 fyrstu daga maí.
23 göngur á 17 mismunandi fjöll á 19 dögum.
95 km. ganga með 7.000m hækkun.
Einnig fylgir með mynd úr Toppfaragöngunni við Hengladali.

Sjöfn Kr:

Mér tókst að ná tilskildri toppatölu í þessari áskorun. Sem kemur svolítið af sjálfu sér þegar maður er að brasa við að ná öðrum markmiðum hvort sem er.
Keilir og Hrafnafell eru upphaf og endir minnar dagskrár og þar á milli eru kannski óþarflega mörg Úlfarsfell, en þessi blessaði hóll er svo hentugur þegar tími manns er naumur eða veður frekar fúl.
Myndirnar eru báðar af mönnum að ganga á heimleið en í ólíkum skilyrðum. Annars vegar á Vatnajökli og hins vegar í miklu þýfi á Hellisheiðinni.
1.maí Keilir og Hrafnafell 9,5 km
2.maí Vífilsfell 6,3 km
3.maí Móskarðshnjúkahringur 8,6 km
4.maí Stardalshnjúkar 4,6 km
5.maí Múli og Bakhæðir 6,2 km
7.maí Úlfarsfell x2 7,7 km
8.maí Úlfarsfell 3,4 km
9.maí Sveintindur og Eystri-Hnappur 21 km
11.maí Úlfarsfell 5 km
12.maí Háihnúkur Akrafjalli 5,3 km
14.maí Helgafell Hfj 8 km
15.maí Úlfarsfell 5km
17.maí Litla Skarðsmýrarfjall, Hengladalabrúnir, Kýrgilshnjúkur 11,6
19.maí Keilir, Keilisbörn, Hrafnafell 9,8 km
Samtals 22 toppar og 112 km
------------------------------------------
Lokaorð frá þjálfara:
Frábær þátttaka og með þeim betri í sögunni held ég ! Takk öll fyrir að vera með í þessari vitleysu... svei mér þá ef þetta verður ekki léttara með árunum... sem betur fer... þessi 31 fjall á 31 dögum út allan maí árið 2038... verður eitthvað... pfjúff... :-)
Til hamingju Chr með árgjaldsvinninginn, þú átt það sannarlega skilið eins og reyndar allir sem tóku þátt !
Áfram við, gleðin, þakklætið og lausnamiðuð hugsun og jú, það að taka okkur ekki of alvarlega heldur bara hafa gaman og hlæja sem allra mest að okkur sjálfum !




Comments