top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Brekkukambur með útúrsnúningi um Digralæk á niðurleið

Æfing nr. 897 þriðjudaginn 28. júlí 2026


Seinni þriðjudagsæfing með þjálfurum í júlí var á Brekkukamb í Hvalfirði og nú var blíðskaparveður... þ.e.a.s... niðri við fjallsrætur...


Farin hefðbundin leið upp... og ætlunin var svo að fara sömu leið til baka... en úr því varð ekki...


Mjög fallegir litir þennan dag... og ljúft og hlýtt veður niðri...


Komin í efri hluta Digralæks þar sem farið er svo um öxlina ofar...


Kominn stígur hér... mjög skemmtileg leið...


Kaflaskipt uppganga... sem hélt okkur vel við efnið... við vorum alltaf að koma á tindinn... þar til við uppgötvuðum næsta hjalla...


Mjög gaman að hittast og spjalla og fá fréttir af ævintýrum sumarsins hjá hverjum og einum... af nógu er að taka... og lang skemmtilegast þegar lærdómur og reynsla gafst af því sem var farið og gengið...


Það var spáð hressilegum skúraleiðingum klukkutímana fyrir æfinguna... en það var eins og það ætti að vera þurrt nákvæmlega á okkar göngutíma... og það rættist nánast alveg... smá dropar á smá kafla... það var svo lítið að það nær ekki plássi í tölfræðinni...


Þyrilsnes hér í sólinni... og regnboginn sem sýnir fram á dropana sem fuku yfir okkur á þessum kafla... sjá vindinn úti á sjó... það var hvasst uppi og ótrúlega svalt...


En í svona rysjóttu veðri er fegurðin aldrei meiri... litabrigðir síbreytileg og útsýnið alveg magnað... Þúfufjall hér hægra megin... og Akrafjall við mynni Hvalfjarðar...


Guðbjörg var eini nýliðinn sem mætti á æfingu en þeir hafa skráð sig nokkrir núna í ágúst... og hún tók á stóra sínum enda krefjandi þriðjudagsæfing... en brosið og jákvæðnin hvarf aldrei... einmitt þetta hugarfar er það sem þarf í fjallgöngurnar... vonandi lætur hún ekki þessa göngu draga úr sér kjarkinn og mætir áfram...


Regnboginn var svo fallegur og alveg í stíl við fötin og spjallið sem fór um allar koppagrundir...


Þegar komið var upp á heiðina blés mjög vel á okkur og þjálfarar ákváðu að láta tindinn sem er austr á þessu mikla víðfeðmi nægja... en við höfum velt því fyrir okkur í gegnum tíðina hvort sá tindur sé hærri en sá sem við höfum eltst við í fyrri göngum... það var á það reynandi þar sem við höfðum tekið ágætis tíma í uppleiðina og veðrið var ekki upp á sitt besta þarna uppi...


Strákarnir á austari tindi Brekkukambs... bálhvassts... en magnað útsýni !


Tindur þessi mældist 661 m hár... en í þriðjudagsæfingunni árið 2019 var sá vestari 652 m hár... og árið 2011 mældist sá vestari 660 m hár... svo ef eitthvað er þá er sá austari hærri en þeir eru allavega svipað háir... og í bók Péturs Þorleifs og Ara Trausta þá er austari tindurinn merktur á korti sem hæsti tindur Brekkukambs... svo við töldum okkur svakalega löglega með að láta hann nægja að sinni og héldum niður á leið...


Hvalfellið og Botnssúlurnar búin að draga sængina yfir sig fyrir nóttina... vindurinn var það hvass að það var best að hjúfra sig bara...


Stórbrotin fegurð og alltaf jafnáhrifamikið fjall að ganga á þessi Brekkukambur...


Við tókum sömu leið upp og niður... og kvíði nýliðans gagnvart henni eftir krefjandi uppgöngu var ástæðulaus... þetta er alltaf léttara á niðurleið en maður heldur...


Þyrill og Múlafjall vinkuðu og þökkuðu fyrir síðast...


Hundurinn Fenrir hennar Þórhildar var að mæta í sína aðra göngu með hópnum og fékk talsvert tiltal frá gamla kallinum honum Batman en hann er hinn mesti ljúflingur og naut sín vel í göngunni... vonandi sjáum við sem mest af þessum fallega og glaða hundi...


Við máttum stundum ekkert vera að því að ganga fyrir spjalli... gott að vera í nánd og samstöðu... en ekki liggjandi sitt í hvoru lagi í sófanum í símanum...


Áður en við vissum af... vorum við búin að afvegaleiðast niður gljúfur Digralæks... og þá var ekki aftur snúið...


Við létum óvissuna ráða för og könnuðum hvort þetta væri ekki fært alla leið... en það erfiðasta við svona gljúfur er oft þrengingar og bratti þegar neðar dregur...


Þau eru afskaplega saklaus efst til að byrja með... en svo byrjar ballið neðar...


Mjög skemmtileg leið og heilmikið klöngur... sem var varla á það bætast eftir bröltið upp allt fjallið og niður aftur...


En glæsilegt var það... og svakalega hollt... allt þetta brölt...


Og jú... gljúfrið reyndist saklaust og greiðfært... í seinfærni sinni...


Mjög skemmtileg ný leið sem við förum án efa aftur... og þá skulum við prófa að fara hér upp...


Ji... við gleymdum að taka hópmynd ! Það var snarlega bætt úr því...


Mættir voru alls 9 manns... og tveir hundar:


Hjörtur, Þorleifur, Guðjón, Sjöfn Kr., Guðbjörg nýliði, Örn, Silla, Þórhildur og Bára tók mynd... og Batman og Fenrir voru hundar kvöldsins...


Sólsetrið tók við síðasta spölinn... nú er sólsetrið mætt á þriðjudögum... njótum áður en myrkrið tekur yfir...


Komin ský á efsta hluta fjallsins... slíkur var vindurinn og kuldinn uppi...


Byggðin í Hvalfirði... ótrúleg saga...


Litahugmynd í riddarapeysu...


Haustið er litríkasti árstíminn... hvílík gæfa að fá að ganga á fjöll allan ársins hring... ein í heiminum laus við alla mannmergð og mengun...


Guðjón með blómið frá Sjöfn... hlýja og vinátta... best í heimi...


Alls 6,6 km á 3:55 klst. upp í 661 m hæð með alls 653 m hækkun úr 10 m upphafshæð.


Mergjuð kvöldganga sem tók vel á og með löngum akstri skilaði þetta okkur ekki í bæinn fyrr en rúmlega ellefu um kvöld... voðalegur derringur er það... þetta var bara eins og í gamla ! En róum okkur... og tökum styttri akstur og styttri göngu þar næsta þriðjudag um Írafell og Skálafellsháls / Hádegisfjall í Kjós... það verður skemmtileg upprifjun !

Comments


bottom of page