top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Reykjafell og Æsustaðafjall korteri fyrir snjóinn sem loksins kom í Reykjavík

Æfing nr. 883 þriðjudaginn 24. febrúar 2026


Þegar við mættum á okkar vanalega stað við rætur Æsustaðafjalls í Skammadal austan við Helgafell í Mósó... var gamla bílastæðið okkar horfið og komnir sand- og moldarbingir... og borun í gangi eftir heitu vatni... magnað !


Við ætluðum á Smáþúfur öðruvísi leið um Blikdalinn þennan þriðjudag... en spáð var miklum vindi og frosti og von á litlu skyggni í 600 m hæð svo við afréðum að færa gönguna nær borginni... og menn voru fegnir...


Dásamlegt að vera hér í dagsbirtu... í mörg ár höfum við gengið hér í myrkri á dimmasta tíma ársins... af því í derringnum viljum við vera komin á hærri fjöll þegar birtu nýtur...


Við byrjuðum á Reykjafelli... með göngu gegnum sumarhúsabyggðina í Skammadal... heillandi heimur sem við vonum innilega að hvergi ekki í græðgi nútímans...


Falleg sýn á Helgafell í Mosó... það er síðasta fjallið í "Níu tinda Mosó" 30 km ofugöngunni sem er komin á dagskrá á sumardaginn fyrsta sem aukaferð...

Helgafellshverfið hér neðan við Helgafellið...


Mikið spjallað og spekúlerað... við erum lítill fjallgönguklúbbur sem lifir á því að við stöndum saman sem einn maður... við erum innilega þakklát öllum þeim sem boðið hafa klúbbmeðlimum upp á aukagöngur þegar þjálfarar eru ekki með tindferðir um helgar og eins þeim sem taka að sér umsjón á þriðjudögum þegar þjálfara eru í sumarfríi öll þessi ár og nú annan hvern þriðjudag... Siggi er þar í sérflokki... við getum ekki þakkað honum né öðrum sem staðið hafa fyrir svona göngum nógsamlega... einmitt vegna þessarar samstöðu hefur okkar litli fjallgönguklúbbur lifað af öll þessi ár og gefið okkur dýrmæta vináttu og samstöðu í gegnum þykkt og þunnt... #þakklæti


Mættir voru 16 manns... ótrúlega góð mæting síðustu mánuði á þriðjudögum: Guðný Ester, Silla, Siggi, Linda, Kolbeinn, Þorleifur, Sjöfn Kr., Frímann, Hjörtur, Guðjón, Örn, Sighvatur, Oddný T. og Björg en Bára tók mynd og Batman og Kolka röltu þetta með okkur í vindinum og kuldanum en góðu skyggni og auðu færi... það var allt annað veður út þessa viku... snjóstormar alla þrjá dagana fram að helgi... loksins sögðum við nú bara !


Jahá... Reykjafjall en ekki Reykjafell... við erum búin að kalla þessa fjallsbungu svo lengi Reykjafell að það er erfitt að breyta... en sjáum til... Mosfellingar rækta svo fallega samband sitt við útivistarsvæðin sín... áfram þeir !



Frá Reykjafelli tókum við stíginn að Einbúa áður en snúið var við yfir á Æsustaðafjall.. Grímmannsfellið hér framundan tvíása eins og Akrafjallið...


Komin á Æsustaðafjall sem mældist 215 m hátt...


Hvasst og farið að rökkva... en allt með okkur nema vindurinn og kuldinn... álagsstuðullinn því eingöngu tveir... því engin var úrkoman, færið var autt og það var dagsbirta... enda var þetta bara frískandi og nærandi ganga...


Fegurðin í Mosófjöllunum...


Við þræddum alla hnúka Æsustaðafjalls sem leynir ágætlega á sér... hlaupatúr með hundinn þennan hring er góð hugmynd...


Farið að rökkva...


Niðurleiðin af Æsustaðafjalli... ferlíkið sem þarna er komið að bora eftir heitu vatni var glæsilegt að sjá... við erum lánsöm með heita vatnið, kalda vatnið og rafmagnið á Íslandi... algerlega besta land í heimi... og á líklega eftir að reyna meira á einmitt þessa ómetanlegu innviði í framtíðinni...


Alls 5,5 km á 1:37 klst. upp í 289 m hæð á Reykjafelli og 215 m hæð á Æsustaðafjalli með alls 289 m hækkun (já, sama talan og hæðartala Reykjafells) úr 99 m upphafshæð...


Takk öll fyrir yndissamveru... sameinuð stöndum vér... áfram við... allavega til 2037 þegar Toppfarar verða 30 ára... við erum rúmlega hálfnuð... og enn að taka 20 km tindferðir um hávetur... ogg Hekla þarna í janúar... jebb... það er nóg eftir á tankinum !

Comments


bottom of page