Sex mergjaðar klúbbgöngur í sumarfríi þjálfara - eigum við að ræða þessa snillinga ?
- Bára Agnes Ketilsdóttir

- Jul 15
- 3 min read
Klúbbgöngur sex þriðjudaga í júní og júlí 2026
Eins og öll þessi ár buðu klúbbfélagar upp á göngur á þriðjudagskvöldum á meðan þjálfarar tóku sitt árlega sumarfrí og að þessu sinni voru það Birgir Martin, Siggi og Þorleifur sem buðu sig fram og verður að segjast eins og er að þessir þriðjudagar voru ein stór veisla !
Meldingar og ljósmynd úr hverri ferð hér í tímaröð:
Þúfufjall í Hvalfirði með Birgi Martin þann 2. júní:

"Þetta urðu 5,6 km og 430 m hækkun hjá okkur í kvöld. Smá úði mestan tímann en hressandi útivera og að sjálfsögðu nærandi samvera !
Takk fyrir þátttökuna öll."
Frá Brynjari um Þúfufjallsgönguna af fb:
"Kvöldganga eftir vinnu á þriðjudegi í Júníbyrjun. Við vorum 7 sem skruppum upp á Þúfu í Hvalfirði á þriðjudagskvöldi.
Það var blanka logn allan tímann, alla leiðina, léttir sumardropar komu öðru hverju en það var það heitt að ég hélst ekki í regnstakknum mínum. Jú ég fann fyrir bleitu þegar maður settist í bílinn, en það var bara virkilega góð tilfinning.
Þetta voru um 6,3 km, með 465 m uppsafnaðri hækkun, þannig að þetta var alveg fín hreyfing.
Þoka læddist yfir Þúfuna og Hvalfjörðin á meðan við vorum á göngunni, og það var bara virkilega skemmtinleg tilfinning hvernig þokan lék við áttarskynið hjá manni ( já alltaf æskilegt að hafa GPS trökkun í gangi í göngum á Íslandi ). Virkilega hressandi og nærandi ferð fyrir líkama og sál."
Kistufell í Esju með Sigga þann 9. júní:

"Nokkrir Toppfarar fóru í göngu á Esju upp á Kistufell. Það má segja að þessi ganga hafi verið nokkuð erfið, mikið um stóra steina sem var erfitt að fara yfir og svo sjóskafla einnig var þoka efst þannig að við sáum aldrei toppinn. En upp fórum við og var hún Mía mín með í göngunni alveg ótrúleg hvað hún var dugleg, ég þurfti bara í smá tíma að setja hana í bakpokann því hún var orðin blaut og köld. Vorum 4 tíma með smá pásu.
Takk fyrir gönguna félagar."
Sköflungur með Sigga þann 16. júní:

"Enduðum bara tvö að fara á Sköflung fínasta æfing og ekkert að veðri."
Vörðuskeggi með Þorleifi 23. júní:

Vantar texta af fb, finn engan sem er skrítið... svona getur fb verið erfitt stundum...
Móskarðahnúkar með Þorleifi 30. júní:

"Kæru félagar. Hérna sjáiði Toppfara af árgerð 1956 sem léku sér að því að toppa alla Móskarðshnjúka í dag."
Frá þjálfara á fb:
"Hver gengur sjötugur á Móskarðahnúka í roki, þoku og rigningu ? ... og ekki bara á þann hæsta ? ... alls 8,4 km með 941 m hækkun ?
... jú... þessi fjögur sem öll verða 70 ára á þessu ári... árgerð 1956... öll með hugarfar sigurvegarans... jákvæðni, elja, staðfesta... einfaldlega magnað !
Þessi þriðjudagsæfing... í fjarveru þjálfara sem eru í sumarfríi... fer í sögubækurnar... í boði árgerðar 1956..."
Gunnlaugsskarð og Þverfellshorn með Þorleifi 7. júlí:

"Það var ljúf og góð þriðjudagsæfing hjá okkur núna. Við gengum upp með Kollafjarðaránni, upp Gunnlaugsskarðið, þaðan yfir á Þverfellshornið og niður. Það var ekta Íslenskt sumarveður, rok og rigning. Þetta var alveg draumaæfing, hefði verið gaman að sjá fleiri mæta."
Samantekt lýkur
Lokaorð: Hvílíkar snilldargöngur allar saman... af öllum ólöstuðum... þá stendur gangan á Móskarðahnúkar upp úr þar sem öll fjögur sem mættu eru fædd árið 1956... strákar, þið eigið allir inneign fyrir einni tindferð fyrir hverja þriðjudagsgöngu, Birgir Martin x 1, Siggi x2 og Þorleifur x3 sem við viljum eindregið að þið nýtið þegar þið komist í tindferðir næstu mánuði eða ár !
Þess skal og getið að Siggi bauð svo ofan á ofangreint upp á sína árlegu laugardagsgöngu upp að Glym í Hvalfirði í júní í blíðskaparveðri og mætingin þangað var mjög góð og þakklætið flæddi um fb... alger snilld !
Hjartansþakkir elsku bestu félagar !




Comments