Skálafell á Hellisheiði um Lakakrók í hvössum og köldum vindi en heiðskíru veðri og gullnu sólarlagi
- Bára Agnes Ketilsdóttir
- Apr 23
- 1 min read
Æfing nr. 847 þriðjudaginn 15. apríl 2025

Við höfðum eingöngu einu sinni gengið á Skálafell á Hellisheiði... sem var á þriðjudagsæfingu 30. mars árið 2010... og einhvern veginn sífellt frestað þessari leið á þriðjudagskveldi síðustu ár vegna veðurs eða kannski smá flótta undan því að finna góða leið til að leggja bílunum og vera ekki ofan í mannvirkjum og vegum virkjunarmanna á heiðinni... en nú drifum við í því að endurvekja kynni okkar af þessu fjalli og ákváðum að fara lengri leið en frá heiðinni... einfaldlega frá sama stað og þegar við göngum á Gráuhnúka, Lakahnúka og félaga... og reyndist þetta vera löng en greiðfær leið í ísköldum stífum vindi en heiðskíru veðri og svo fallegu sólarlagi að við nutum hvers augnabliks...
Alls 10,3 km á 3:06 klst. upp í 590 m hæð með alls 454 m hækkun úr 319 m upphafshæð...
Frábær æfing og hörkuframmistaða allra sem mættu... ljósmyndir göngunnar hér fyrir neðan og nafnalisti undir hópmyndinni:























Örn, Hjörtur, Sjöfn Kr., Guðjón, þorleifur, Björg, Aníta, Linda, berta, Áslaug,, Kristrún, Siggi, Olli og Batman og Baltasar eru þarna með og Bára tók mynd.

























Frábær æfing í langri vegalengd og röskri göngu á mjög fallegri leið... takk fyrir okkur elskurnar :-)
Comments