Snókur / Snóksfjall í mögnuðu stuðlabergi og afmælisveislu Fanneyjar
- Bára Agnes Ketilsdóttir
- May 1
- 1 min read
Æfing nr. 849 þriðjudaginn 29. apríl 2025

Í þriðja sinn var Snókur og Snóksfjall á þriðjudagskveldi og aftur fengum við ágætis veður á þessum einstaka gostappa sem er einstök náttúrusmíð... og aftur urðum við agndofa í klöngrinu efst ofan á stuðlaberginu stórgerða þar sem stólparnir lágu eins og hráviði í allar áttir og krefjandi var að fóta sig yfir þetta efst...
Mögnuð leið á einstakt fjall og dásamleg stemning þar sem Fanney bauð upp á heimabakaða hjónabandssælu í tilefni af afmæli sínu þennan dag... og ekki bólaði á vindi nema allra efst á Snóksfjallinu sjálfu... annars vorum við í einhvurs lags skjóli á upp- og niðurleið og slapp ótrúlega vel á þessu síðasta aprílkveldi ársins 2025...
Alls 4,8 - 5,1 km á 2;34 klst. upp í 615 m hæð með alls 540 m hækkun úr 124 m upphafshæð.
Ljósmyndir úr göngunni og nafnalisti undir hópmyndinni hér fyrir neðan:











Björg, Sjöfn Kr., Silla, Kolbeinn, Inga, Sigrún Bjarna, Örn, Fanney, Þorleidur, Guðný Ester og Brynjar en Bára tók mynd og Batman var eini hundurinn þetta kvöld...


































Dásamleg ganga... kærar þakkir bændur að Neðra Skarði fyrir liðlegheitin að leyfa okkur að keyra gegnum bæjarstæðið og upp eftir veginum... haf þökk elskur fyrir dásamlegt kvöld og sérstaklega Fanney fyrir ljúffengu veitingarnar !
Comments