top of page

Fri, Aug 11

|

Island, 851, Iceland

Löðmundur við Landmannahelli

Mjög svipmikil ganga á margtindótt og gullfallegt fjall á Landmannaafrétti sem oft er kallað "Kóngurinn" á svæðinu mót "Drottningunni" Heklu. Frekar stutt og létt ganga á færi allra með stórfenglegu útsýni yfir Fjallabakið, hálendið allt, Sprengisand og jökla nær og fjær, alveg magnað útsýnisfjall.

Registration is Closed
See other events
Löðmundur við Landmannahelli
Löðmundur við Landmannahelli

Time & Location

Aug 11, 2023, 8:00 AM – 5:00 PM

Island, 851, Iceland

About the Event

Uppfært 11. ágúst: 

Skráðir eru 10 manns:  Anna Margrét gestur, Aníta, Fanney, Jaana, Njóla, Linda, Oddný T., Sigríður Lísabet, Silla, Örn. 

Komnir 2 jeppar, Örn og Njóla.

Örn mætir einn þar sem Bára er á næturvöktum um helgina. 

Nýjustu tilkynningar:

*Þetta var upphaflega föstudagsfjall en við ætlum að fara á sunnudegi svo þetta er hefðbundin tindferð hér með.

Verð:

Kr. 7.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mætt hafa í tindferð síðustu 2 mánuði.

Kr. 10.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 13.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn www.yr.no þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 17:00.

Aksturslengd:

Rúmlega 2,5 klst. Fjórhjóladrifnir bílar komast að Helliskvísl en best að vera á jepplingi eða jeppa. 

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurlandsveg, Landvegamót og inn Dómadalsleið að Landmannahelli. 

Hæð:

Um 1.096 m.

Hækkun:

Um 587 m miðað við 597 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 8 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 4 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp grasi grónar hlíðar til að byrja með og svo þéttar, grýttar brekkurnar ofar þar sem komið er upp á vesturenda fjallsins og það gengið um hóla og hæðir grýtta og gróna leið að hæsta tindi en á hann er grýttur slóði í ágætis bratta sem er fær öllum og þaðan gefst ótrúlegt útsýni til allra átta. Förum á 1 - 2 aðra tinda eftir veðri og skyggni áður en haldið er niður til baka á hringleið um fjallið.  

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta fjallgöngu með snörpum brekkum upp á sjálft fjallið og á tindana sjálfa en annars greiðfært milli tinda. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér:  

Share This Event

bottom of page