top of page

Skráning í fjallgönguklúbbinn
Toppfara...

... fer fram með greiðslu æfingagjalda og tölvupósti á baraket(hjá)simnet.is.


Hægt er að skrá sig inn hvenær sem er ársins og gilda æfingagjöldin frá og með skráningu.

Tölvupóstur skal innihalda eftirfarandi:

  • Fullt nafn

  • Kennitölu

  • Heimilisfang

  • GSM símanúmer

  • Netfang

  • Greiðslufyrirkomulag, þ.e. hvort búið er að greiða árgjald, hálft ár eða vera með mánaðarlegar greiðslur (hringja þá í Örn með kreditkortanúmerið í síma 899-8185).
     

 

Verðlisti:

  • Árgjald: 12 mánuðir: kr. 26.000 á mann - hjón/par/vinapar greiða 1,5 gjald: kr. 39.000.
     

  • 6 mánuðir: kr. 18.000 á mann - hjón/par/vinapar greiða 1,5 gjald: kr. 27.000.
     

  • Mánaðarlegar greiðslur af kreditkorti: kr. 2.600 á mánuði - hjón/par/vinapar greiða 1,5 gjald: kr. 3.900.

  • Mánaðarlegar greiðslur eru lágmark 6 mánuðir í upphafi og tekur 1 mánuð að segja upp.
     

  • Æfingagjöldin hækkuðu 1. september 2021 eftir margra ára óbreytta verðskrá og lækkun fyrir nokkrum árum.
     

  • Æfingagjöld hækka aldrei hjá virkum félögum ef þeir halda áfram þó gjaldskrá hækki almennt - þannig þökkum við fyrir tryggðina (eldri gjald til ágúst 2021 var 20.000 / 2.000 kr.).
     

  • Hægt er að nota niðurgreiðslu stéttarfélaga eða vinnuveitenda vegna líkamsræktar fyrir æfingagjöldum Toppfara.
    Örn sendir póst með kvittun á pdf-skjali sem hægt er að senda á stéttarfélagið (orn-bokari(hjá)simnet.is).

     

  • Ef greitt er með afslætti hjóna/para/vina eru æfingagjöld dregin af einu kreditkorti (annars aðilans) og ef greitt er árgjald í einni greiðslu þá greiðir annar aðilinn kr. 39.000 og menn gera upp sín á milli (ekki greiða 19.500 kr. hvor NB).
     

  • Ekki er hægt að skrá sig í styttri tíma en 6 mánuði.
     

  • Athugið að æfingagjöldin eru lág þar sem við hugsum ástundun í fjallgönguklúbbnum okkar til langs tíma, helst árum saman. Æfingagjöldin miðast því við að klúbbmeðlimir komist ekki alltaf og detti jafnvel út í einhverjar vikur eða mánuði en það komi ekki að sök þar sem þetta sé lífsstíll en ekki tímabundið verkefni þó menn séu að sjálfsögðu velkomnir tímabundið með okkur eins og mörg dæmi eru um.

 

 

Greiðslu má inna af hendi á eftirfarandi máta:

  • Greiða beint inn á reikning Toppfara ehf nr:  0114 - 26 - 58100 á kt: 581007- 2210.
     

  • Eða með símgreiðslu af kreditkorti með því að hringja inn kreditkortanúmer í Örn Gunnarsson, þjálfara í síma 899-8185.

 

Innifalið í klúbbgjaldi:

  • Skipulagðar fjallgönguæfingar alla þriðjudaga allt árið um kring kl. 17:00 frá Össur þar sem sameinast er í bíla eða kl. 17:30 frá fjallsrótum ef mætt er beint þangað á fjöllin við höfuðborgina.

  • Lægra gjald fyrir tindferðir og lengri ferðir sem greiðast aukalega.

  • Forgangur í lengri ferðir og gönguferðir erlendis.

  • Þjálfarar taka sér fasta hvíld í 5-6 vikur að sumri og 1-3 vikur að vetri til og reiknast æfingagjöldin út frá því en þriðjudagsgöngum hefur almennt alltaf verið haldið úti í fjarveru þjálfara, þar sem klúbbmeðlimir bjóða upp á þriðjudagsgöngur í staðinn og því má reikna með því að alltaf sé þriðjudagsfjallganga allt árið um kring þrátt fyrir hvíldartíma þjálfara. 

 

 

Verð í staka tindferð fer eftir lengd, umfangi og staðsetningu: 

  • Kr. 7.000 - 12.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir með æfingagjöld mæta.

  • Kr. 9.000 - 15.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

  • Kr. 12.000 - 18.000 fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
     

  • Verð í jöklaferð eða flóknari tindferðir ræðst af umfangi hverju sinni. 
     

Gestir geta því miður ekki komið í staka þriðjudagsgöngu til prufu eins og áður var, þær eru eingöngu fyrir klúbbmeðlimi þar sem við viljum ekki bera ábyrgð á fleirum en skráðum meðlimum.

 

Ef gestir vilja koma í staka þriðjudagsgöngu þá geta þeir skráð sig í einn mánuð með því að greitt kr. 8.000 og komið í allar fjórar þriðjudagsgöngurnar þann mánuðinn, en athugið að þátttaka í Toppförum miðast almennt við langtímaþátttöku og því er árgjaldið lágt og hækkar ekki meðan menn halda áfram árum saman, enda er það okkar markmið að klúbbfélagar séu helst með okkur til margra ára. Sendið póst á þjálfara fyrir frekari upplýsingar. 

Gjafakort í klúbbinn:

 

Hægt er að kaupa gjafakort fyrir einhvern með aðild í klúbbnum í hálft ár eða árgjald í heilt ár.

Sendið þjálfara póst og við útbúum fallegt gjafakort og sendum það í pósti eða afhendum í póstlúgu á uppgefið heimilisfang ef  viðkomandi er á  höfuðborgarsvæðinu.

Mikilvægar upplýsingar til nýliða:

  • Allar upplýsingar um klúbbinn, stofnun, markmið starfsemi, reglur, þróun o. m. fl. má lesa hér.
     

  • Athugið að það er heillavænlegast að einsetja sér að mæta reglulega á þriðjudögum og svo í tindferðirnar um helgar um leið og geta leyfir en um leið gera ekki þá kröfu á sjálfan sig að mæta alltaf því það er ávísun á vonbrigði eða ávísun á að gefast upp eftir ákveðinn tíma vegna álags. Við mælum með að stefna á að á fjall einu sinni í viku eða aðra hvora viku til að byrja með eða jafnvel bara einu sinni í mánuði ef lífið er flókið hjá manni þá stundina. Mjög sjaldgæft er að ná að mæta alla þriðjudaga vikum og mánuðum saman og best að setja ekki þá kröfu á sjálfan sig í byrjun heldur miða við að ná að mæta í hverjum mánuði t. d. eða álíka. Um leið er það okkar reynsla að þeir sem vilja komast í gott fjallgönguform og vilja geta tekið þátt í lengri ferðunum, þá sé best að mæta reglulega á þriðjudögum eða fara sjálfur á #vinafjalliðmitt einu sinni í viku, ekki hika við að koma í tindferðirnar og máta sig við hópinn þó vegalengd eða erfiðleikastig hljómi erfitt. Flestir vanmeta eigin getu og eiga ekki að hika við að mæta og sjá þá hversu mikið þeir þurfa að bæta formið til að geta haldið í við aðra í hópnum. Við höfum öll verið á byrjunarreit einhvern tíma og höfum öll komist að því að þetta snýst einfaldlega um að láta slag standa, mæta og sjá erfiðleikastigið á eigin skinni og einsetja sér svo í kjölfarið að æfa svo eins og maður þarf. 
     

  • Sækið endilega um aðild að lokaða fasbókarhópnum  "Toppfarar" þegar búið er að ganga frá æfingagjöldum :-)
    Þjálfari getur ekki bætt nýliðum við nema vera vinir þeirra á fb fyrst og stundum er erfitt að finna nýliðana á fb svo endilega sækið sjálf um hér: https://www.facebook.com/groups/toppfarar/

     

  • Fjallgönguklúbburinn er einnig með opinbera síðu á fb til að kynna klúbbinn, þar sem allar dagsferðir / tindferðirnar eru settar inn sem viðburðir, svo gestir og gamlir klúbbfélagar geti komið í stöku tindferð með hópnum. Klúbbfélagar Toppfara skrá sig þar inn á hvern viðburð fyrir sig og greiða lægra gjald sem klúbbmeðlimir og klúbbmeðlimir ganga fyrir ef þátttaka er takmörkuð: https://www.facebook.com/fjallgongur.is 
     

  • Sjá dagskrá klúbbsins fyrir árið. Þjálfarar semja dagskrá heils árs í senn og birta hana síðla hausts árið á undan.
     

  • Skoðið búnaðarlista klúbbsins en munið að lykilatriði er að mæta, ekki hvaða búnað maður á né að eiga allt sem er á listanum. Mætum í því sem við eigum til að byrja með og sjáum smám saman hvaða búnað mann vantar að koma sér upp (vantar mig betri gönguskó,  hlífðarföt eða belgvettlinga og afhverju þá ?). Fjallgöngur snúast ekki fyrst og fremst um að þurfa að eiga margslunginn og dýran búnað heldur að leggja í hann helst einu sinni í viku og láta ekki veður eða annað hindra reglulega ástundun, svo formið sé gott allt árið um kring. Lágmarks fjallgöngubúnaður að okkar mati er gönguskór, hlífðarjakki, hlífðarbuxur, hlýjir vettlingar og hlýtt höfuðfat, bakpoki og kjarngott nesti og þannig getur maður byrjað. Reynslan við að ganga á fjöll allt árið um kring kennir manni svo smám saman að það er gott að hafa belgvettlinga, lambhúshettu, skíðagleraugu, hælsærisplástur, keðjubrodda o.fl. í bakpokanum en slíkan búnað er best að koma sér upp smám saman eftir því sem reynslan kennir manni.
     

  • Hvernig kemst ég í gott fjallgönguform...? ... um hvað snýst fjallgönguþjálfun ?...  lykilatriði er að detta aldrei úr formi heldur viðhalda því með reglulegri ástundun. Tilgangur þessa fjallgönguklúbbs er fjallgönguþjálfun við allar aðstæður veðurs, færðar og birtuskilyrða allt árið um kring og að njóta íslenskrar náttúru sem mest í leiðinni... andlegri og félagslegri vellíðan til hagsbóta ekki síður en líkamlegri. 
     

  • Athugið að einkenni þessa klúbbs er að fara sífellt á ný fjöll eða nýjar leiðir á fyrri fjöll í bland við fyrri leiðir, en ekki endurtaka sífellt sömu leiðirnar (nema stöku fjöll yfir háveturinn í myrkri). Þá er það einnig einkenni þessa klúbbs að velja meðvitað erfiðari leiðir á þekkt fjöll eða áður gengin fjöll, ekki einföldustu eða léttustu leiðina sem þýðir meira klöngur og meiri fyrirhöfn. Allt í þeim tilgangi að þjálfa okkur og ögra, svo við verðum betri og öruggari í fjallgöngum, enda er erum við fjallgönguþjálfunarklúbbur en ekki ferðafélag og það er mikilvægt að allir átti sig á þessu. Tilgangur þessa klúbbs er ekki að bjóða fólki í ferðir heldur að þjálfa það í fjallgöngum sem þýðir að þjálfa öryggi og færni í klöngri ekki síður en úthaldi. 
     

  • Mikilvægasta veganestið í okkar klúbbi er virðing... auðmýkt... jákvæðni... gleði... áræðni... staðfesta... þrautsegja og þakklæti... og við minnum reglulega á þessi gildi, því þau gefa orku og gleði... og það sem mest er um vert... ný ævintýri að upplifa.
     

  • Frekari upplýsingar hjá þjálfurum; Bára: 867-4000 / baraket(hjá)simnet.is eða  Örn 899-8185 /orn-bokari(hjá)simnet.is.


    Komdu með...... það er magnað að safna sífellt nýjum fjöllum... nýjum leiðum... nýjum upplifunum... 

bottom of page