top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Ofurgöngurnar


Eftir að hafa látið gamlan draum rætast og ganga Laugaveginn á einum degi eða í raun einni nóttu árið 2020

var ekki aftur snúið... og þjálfarar ákváðu að fara eina svona Ofurgöngu á ári... þar sem gengin er 3ja daga gönguleið á einni nóttu... og upplifa þannig bjarta sumarnótt á hverju sumri... og fá sólarlag og sólarupprás beint í æð á göngu um miðja nótt...

​

Alls höfum við farið fjórar Ofurgöngur til þessa, hver annarri ólíkari og hver annarri magnaðri.

 

Reynslan af þeim öllum er fyrst og fremst sú að við getum meira en við höldum og að þetta er léttara en við gerðum ráð fyrir. Engu að síður er þetta mjög krefjandi og síðasti kaflinn sígur mjög vel í hjá öllum og þá reynir á að þola þreytu, verki og líkamlega vanlíðan þó mismikið sé milli einstaklinga og milli gangna hverju sinni. Dagsformið skiptir máli og undirbúningur skiptir höfuðmáli (með löngum dagsferðum mánuðina á undan) en það sem mest á reynir, er andlegt atgervi því maður þenur sál og líkama til hins ítrasta en þarf samt að halda áfram allt til enda sama hvað.

 

Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun, trú á sjálfum sér og yfirvegun eru því mikilvægustu eiginleikarnir fyrir þessar Ofurgöngur

og hafi menn yfir þessum eiginleikum að búa, þá er þeim ekkert að vanbúnaði að koma með eða fara á eigin vegum með vandlegum undirbúningi... svo lengi sem þeir hafa æft vel og gengið reglulega mánuðum saman fyrir ferðina.

​

Við getum ekki nógsamlega mælt með þessum Ofurgöngum því þær gefa manni meira og annað en hefðbundnar gönguferðir... og þeir sem ganga á fjöll allt árið um kring árum saman... eiga skilið að upplifa einmitt þetta einstaka og öðruvísi en það hefðbundna og komast að því að þeir geta meira en þeir héldu...

​

Hér eru Ofurgöngurnar okkar í tímaröð... og samantekt á áhugaverðri tölfræði neðst.

laugavegurinn_260620.jpg

Þann 26. - 27. júní 2020

Kl. 16:42 á fös til kl.11:05 á laug

Matti keyrði okkur á jeppa

55,3 km

19:04 klst. 

Upphafshæð: 603 m

Hæsta hæð: 1.068 m

Hækkun: 2.083 m

Lækkun: 2.479 m​

Meðalhraði með pásum: 2,9 km/klst. 

Meðalhraði á hreyfingu: 4,0 km/klst. 

Vöð: 4

13 göngumenn

​​

- Lygnt, sólríkt, hlýtt, friðsælt

- Lengsta vegalengdin

- Mesta hæðin, hækkunin og lækkunin

- Mesta áskorunin: Vegalengdin og tímalengdin og að vera með fyrstu til að fara leiðina þetta sumarið.

t223_vatnaleid_210521 (230).jpg

Þann 21. - 22. maí 2021

Kl. 16:14 á fös til kl. 07:29 á laug

Axel hjá Rútubílum keyrði okkur á rútu

41,6 km

15:02 klst. 

Upphafshæð: 82 m

Hæsta hæð: 573 m

Hækkun: 1.900 m

Lækkun: 1.649 m​

Meðalhraði með pásum: 2,6 km/klst.

Meðalhraði á hreyfingu: 3,7 km/klst. 

Vöð: 3

16 göngumenn

​

- Lygnt en hvasst í lokin, sólríkt, kalt, frost.

- Stysta vegalengdin

- Stysta tímalengdin 

- Mesta áskorunin: Kuldinn á efsta hluta leiðarinnar yfir nóttina og óvissan með leiðina sjálfa þar sem engir stígar voru (heiðarnar). 

20230711_222550.jpg

Þann 11. - 12. júlí 2023

Kl. 15:55 á þri til kl. 07:06 á mið

Keyrðum á þjálfarajeppanum að Langasjó

​

51,0 km

15:12 klst. 

Upphafshæð: 686 m

Hæsta hæð: 736 m

Hækkun: 1.166 m

Lækkun: 1.170 m​

Meðalhraði með pásum: 3,15 km/klst. 

Meðalhraði á hreyfingu: 4,2 km/klst. 

Vöð: 2

6 göngumenn

​

- Hvasst allan tímann nema yfir blánóttina, heiðskírt, svalt. 

- Mesti hraðinn

- Stysta tímalengdin

- Mesta áskorunin: Vindurinn og hversu afskekkt við vorum og langt frá fólki og allri hjálp.

20240708_160504.jpg

Þann 8. - 9. júlí 2024

Kl. 14:30 á mán til kl. 07:35 á þri 

Keyrðum sjálf í Norðurfjörð og fengum bátsferð frá Norðurfirði að Dröngum með Strandferðum

49,2 km

16:52 klst. 

Upphafshæð: 11 m

Hæsta hæð: 268 m

Hækkun: 1.452 m

Lækkun: 1.451 m​

Meðalhraði með pásum: 2,5 km/klst. 

Meðalhraði á hreyfingu: 3,4 km/klst.

Vöð: 3

16 göngumenn

​

- Logn og blíða allan tímann, hlýtt og sól að mestu.

- Stórkostlegt sólarlag yfir nóttina. 

- Hægasti gönguhraðinn

- Mesta áskorunin: Síðasti kaflinn um grófar kindagötur og síðasta brekkan úr Geitahlíð þegar þreytan var sem mest.

Samanburðar - tölfræði Ofurganganna:

 

Lengsta í km:  Laugavegurinn 

Stysta í km:  Vatnaleiðin 

​

Lengsta í klst:  Laugavegurinn 

Stysta í klst:  Vatnaleiðin 

​

Mesti gönguhraðinn:  Langisjór

Hægasti gönguhraðinn:  Drangaskörð

​

Mesta hæð:  Laugavegurinn

Mesta hækkunin:  Laugavegurinn 

Mesta lækkunin: Laugavegurinn 

​

Minnsta hæð: Drangaskörð

​

Mesti vindurinn:  Langisjór

Mesti kuldinn:  Vatnaleiðin 

Mestu hlýindin: Drangaskörð

​

Fjölmennasta:  Vatnaleiðin og Drangaskörð

Fámennasta:  Langisjór 

​

Fegursta sólarlagið:  Drangaskörð 

Afskekktasta leiðin: Langisjór 

Mesta óvissan: Langisjór 

Flóknasta leiðin: Langisjór

​Flest vöðin: Laugavegurinn 

​

Erfiðasta gangan að mati þjálfara: Drangaskörð segir Bára en Langisjór segir Örn og sitt sýnist hverjum af leiðangursmönnum - sjá síðar samantekt frá þeim með þetta !​

​

Mesti lærdómurinn: Yfirleitt rætist úr veðri, menn geta meira en þeir halda, það reynir meira á andlegt atgervi en líkamlegt í þessum göngum, leiðirnar eru fallegri en við áttum von á almennt, birtan yfir nóttina er svo einstök og töfrum slegin að hvorki orð né myndir fanga það nægilega...

 

Þetta er eitthvað annað... þetta er ávanabindandi... 

​

Því miður féllu Ofurgöngurnar árin 2025 um Strútsstíg og 2016 um Ketildali niður vegna þátttöku og veðurs og því ætlum við hér með að einbeita okkur að löngum dagleiðum á leið okkar yfir landið #ÞvertyfirÍsland næstu árin... Sprengisandur, Vonarskarð, Gæsavatnaleið, Flæðurnar, Holuhraun, Dreki, Herðubreiðarlindir... hvílík veisla framundan næstu árin... í brjósti okkar býr botnlaust þakklæti gagnvart þessum fjórum Ofurgöngum sem eru að baki... verðmæti þeirra verður aldrei metið til fjár... 

​

bottom of page