Æfing nr. 897 þriðjudaginn 28. júlí 2026 Seinni þriðjudagsæfing með þjálfurum í júlí var á Brekkukamb í Hvalfirði og nú var blíðskaparveður... þ.e.a.s... niðri við fjallsrætur... Farin hefðbundin leið upp... og ætlunin var svo að fara sömu leið til baka... en úr því varð ekki... Mjög fallegir litir þennan dag... og ljúft og hlýtt veður niðri... Komin í efri hluta Digralæks þar sem farið er svo um öxlina ofar... Kominn stígur hér... mjög skemmtileg leið... Kaflaskipt uppganga.