Tindferð nr. 354 föstudaginn langa 3. apríl 2026 Á páskum í fyrra gengum við loksins á Litlu Heklu og kynntumst Feðgum í leiðnni um miðjan apríl... Í þeirri ferð sáum við spennandi nýja leið á Heklu beint upp af Litlu Heklu nánast... og ákváðum að setja þessa leið á dagskrá páskana 2026... Eftir snjólausan vetur tóku veðuröflin skyndilega upp á því að snjóa endalaust í marsmánuði og létu ekki við sitja að bæta verulega í á suðvesturhorni landsins á skírdag þann 2. Apríl… svo