Tindferð nr. 352 laugardaginn 7. febrúar 2026 Veðurblíðan árið 2025 heldur áfram veturinn 2026... stöðugleiki, úrkomuleysi, sólbirta, frost... er einkenni janúar og febrúar þar sem af er ári... og við þiggjum það með þökkum og náðum fjórðu tindferðinni á áætlun og það í góðu veðri í öllum göngunum... sem hefur aldrei gerst áður í 19 ára sögu klúbbsins... árið 2017 fórum við t.d. þrjár ferðir í janúar en aldrei í góðu veðri... og árið 2025 fórum við enga tindferð sökum slæmrar