Æfing nr. 883 þriðjudaginn 24. febrúar 2026 Þegar við mættum á okkar vanalega stað við rætur Æsustaðafjalls í Skammadal austan við Helgafell í Mósó... var gamla bílastæðið okkar horfið og komnir sand- og moldarbingir... og borun í gangi eftir heitu vatni... magnað ! Við ætluðum á Smáþúfur öðruvísi leið um Blikdalinn þennan þriðjudag... en spáð var miklum vindi og frosti og von á litlu skyggni í 600 m hæð svo við afréðum að færa gönguna nær borginni... og menn voru fegnir... D