Æfing nr. 898 þriðjudaginn 11. ágúst 2026 Í þriðja sinnið gengum við á þriðjudagskveldi á fjallaþrennuna sem rís austarlega í Kjósinni sunnan megin... Frábær mæting... 16 manns... Dásamlegt veður... milt, lygnt, hlýtt, þurrt... Heilmikil hækkun en í ljúfu landslagi og því var þetta hörkuæfing þó greiðfær væri... Meðalfellið og Sandfell í Kjós hér í baksýn... Hádegisfjall hér nær vinstra megin og Skálafellsháls hægra megin stærri og hærri... Írafellið var þeirra lægst og mælæd