top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

18 ára hátíðar afmælisganga að Svörtugjá í Víðihamrafjalli og Glym með glimmer og væbandi sólgleraugu eftir smekk !

Wed, May 14

|

Afmælisganga

Fögnum 18 ára afmæli fjallgönguklúbbsins með því að mæta á þriðjudagsæfingu í silfurglimmer af hvaða sort og útgáfu sem er og/eða með væb-sólgleraugu - grípum gleðina og skálum í freyðivíni, gosi og konfekti í tilefni dagsins. Þriðjudagurinn 20/5 til vara eftir veðri !

18 ára hátíðar afmælisganga að Svörtugjá í Víðihamrafjalli og Glym með glimmer og væbandi sólgleraugu eftir smekk !
18 ára hátíðar afmælisganga að Svörtugjá í Víðihamrafjalli og Glym með glimmer og væbandi sólgleraugu eftir smekk !

Dagsetning og tími

May 14, 2025, 5:00 PM – 10:00 PM

Afmælisganga, 301, Iceland

Nánari upplýsingar

Fögnum 18 árum á fjöllum og göngum eina af okkar uppáhalds öðruvísi leiðum að fossinum Glym þar sem við förum að Svörtugjá og komum ofan megin að fossinum austan megin, vöðum yfir Botnsá uppi og göngum svo niður með gljúfri Glyms hefðbundna leið þar sem Glymur nýtur sín í öllu sínu veldi. Gerum ráð fyrir að þurfa að vaða ána líka niðri ef staurinn er ekki kominn en það verður ekkert mál í sumarveðri ólíkt t. d. vetrarvöðuninni í snjónum á Sátuhnúk í apríl :-)


Mætum með hvers lags glimmer meðferðis í fötum eða búnaði og með svöl væb-sólgleraugu ef við eigum og fögnum gleðinni og sumrinu saman og þeirri staðreynd að vera virkilega ennþá á fjöllum eftir 18 ár !


Gamlir og nýir klúbbmeðlimir hjartanlega velkomnir með í þessa göngu og klúbbmeðlimir mega endilega taka gesti með sem þeir bera þá ábyrgð á.


Þjálfarar mæta með freyðivín og konfekt…


Deildu hér

bottom of page