Akrafjall hringleið á Geirmundartind, Jókubungu og Háahnúk með einstöku útsýni og vonandi gullinni vetrarsól
Fri, Dec 29
|Akranes
Mjög skemmtileg leið um Akrafjall á þrjá helstu tinda þess með miklu útsýni til norðurs yfir sveit og fjöll og svo suðurs til sjávar og ef það er léttskýjað þá mun vetrarsólin gylla allt á einstakan hátt eins og árið 2007 sem aldrei gleymist.
Time & Location
Dec 29, 2023, 9:00 AM – 5:00 PM
Akranes, 82G7+8RQ, 301 Akranes, Iceland
About the Event
Uppfært 28. desember 2023 kl. 15:00:
Skráðir eru 7 manns: Bára, Björg, Jaana, Sighvatur, Sjöfn Kr., Þórkatla og Örn.
Nýjustu tilkynningar:
*Athugið að við ætlum að hafa fim 28/12 og fös 29/12 til vara ef veður er ekki gott á laugardeginum EF nægilega margir komast þá daga, metum þetta saman sem hópur þegar nær dregur.
*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra og best að taka höfuðljósið með til öryggis þar sem dagurinn er stuttur.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Þjálfarar.
Brottför:
Kl. 09:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 16 - 17:00.
Aksturslengd:
Um 40 mín. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg, gegnum Hvalfjarðargöng og þegar komið er úr göngunum er beygt til vinstri í átt að Akranesi. Sá vegur ekinn meðfram fjallinu þar til beygt er til hægri ómerktan malarslóða sem liggur að bílastæðinu neðan við fjallið.
Hæð:
Um 675 m.
Hækkun:
Um 1.034 m miðað við 34 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 14 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngutími:
Um 5:30 - 6 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Upp snarpar og grýttar en vel færar brekkurnar á Geirmundartind og fjallið svo þverað á heiðinni frá norðurbungu fjallsins yfir á þá syðri þar sem komið er við á Jókubungu og þrætt með brúnunum öllum sunnan megin að Háahnúk. Farið á stíg niður af honum annað hvort niður í dalinn eða hefðbundnu vetrarleiðina okkar eftir ásnum.
Erfiðleikastig:
Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir miðlungs langa dagsgöngu á greiðfært fjall með léttu brölti í grjóti og á slóða að stórum hluta.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
FB-viðburður: