top of page

Sun, Apr 30

|

Akrafjall

Akrafjall er fjall mánaðarins í apríl

Akrafjall er aprílfjallið í vinafjallsáskoruninni þar sem við göngum á einhver af 12 vinafjöllunum okkar árið 2023 og reynum að ná að lágmarki 52 ferðum á árinu alls eða fleiri ferðir. #vinafjalliðmittx52 #vinafjöllinokkarx52

Registration is Closed
See other events
Akrafjall er fjall mánaðarins í apríl
Akrafjall er fjall mánaðarins í apríl

Time & Location

Apr 30, 2023, 8:00 AM – 11:00 PM

Akrafjall, Akrafjall, 301, Iceland

About the Event

Göngum eina ferð (eða fleiri) á Akrafjall á Akranesi við öll sem ætlum að taka þátt í vinafjallsáskorun ársins 2023.  

Vinafjöllin árið 2023 eru tólf og fær hvert fjall sinn mánuð þar sem allir þátttakendur verða að ganga á það fjall einu sinni (eða oftar að vild) í þeim mánuði. 

Fjallalistinn er eftirfarandi:

Janúar: Mosfell - lokið !

Febrúar: Helgafell í Hafnarfirði - lokið !

Mars: Ásfjall í Hafnarfirði - lokið !

Apríl: Akrafjall á Akranesi.

Maí: Hafrahlíð við Hafravatn.

Júní: Þorbjörn á Reykjanesi.

Júlí: Móskarðahnúkar.

Ágúst: Vífilsfell.

September: Esjan.

Október: Helgafell í Mosó.

Nóvember: Búrfellsgjá.

Desember: Úlfarsfell.

Þannig kynnumst við vinafjöllum hinna en getum annars gengið á okkar vinafjall í öll hin skiptin á árinu... bara gaman... og bara til hvatningar fyrir okkur öll... frábær leið til að koma sér í gott fjallgönguform og viðhalda því árum saman... 

Sjá viðburðinn yfir #vinafjöllinokkarx52 árið 2023 - verum öll með, þjálfum okkur og skemmtum okkur á fjöllum !

Vinafjöllin okkar 2023 | Toppfarar (fjallgongur.is)

Share This Event

bottom of page