top of page

Sat, May 01

|

#Snæfellsnesfjöllin

Bárðarkista, Hreggnasi, Miðfell, Blákolla og Heiðarkolla í Geldingafelli vestra og Svörtutindar við Snæfellsjökuls

Mjög spennandi könnunarleiðangur á svipmiklu fjöllin ofan við Hellissand á Snæfellsnesi sem rísa í rótum Snæfellsjökuls og skreyta vestasta hluta nessins milli sjávar og jökuls.

Bárðarkista, Hreggnasi, Miðfell, Blákolla og Heiðarkolla í Geldingafelli vestra og Svörtutindar við Snæfellsjökuls
Bárðarkista, Hreggnasi, Miðfell, Blákolla og Heiðarkolla í Geldingafelli vestra og Svörtutindar við Snæfellsjökuls

Time & Location

May 01, 2027, 7:00 AM – 7:00 PM

#Snæfellsnesfjöllin, Snæfellsnes, 342, Iceland

About the Event

Uppfært 20. apríl 2024:

Skráðir eru 3 manns: Bára, Birgir, Örn.

Mikilvægar tilkynningar: 

*Ferð frestað vegna veðurs til sömu helgar og Eyjafjallajökuls sem varafjall þá. Við ætlum þessa leið og munum finna dag þegar gefst með veður. 

*Eingöngu farið í góðri veðurspá.

*Fólksbílafært, langur akstur en mjög spennandi svæði um fjallsrætur Snæfellsjökuls og hverrar mínútu virði !

*Tökum vaðskó og þurrklút með til öryggis ef við skyldum þurfa að vaða.

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Þorgeirsfell - Long term forecast

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 7:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 19:00.

Aksturslengd:

Um 2,5 klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg um Hvalfjarðargöng, gegnum Borgarnes og út á Snæfellsnes alla leið að Snæfellsjökli og Arnarstapa og haldið áfram undir jöklinum þar til komið er alveg vestan megin þar sem beygt er til vinstri afleggjara við Saxhól þar sem bílum er lagt. 

Hæð:

Um 730 m.

Hækkun:

Um 1.000 m miðað við 160 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 16 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið frá þjóðveginum um gras, mosa og grjót upp og niður svipmikil fjöll og hraungíga í rótum jökulsins með ágætis brölti og klöngri á stöku stað eftir því hvert landslagið leiðir okkur en þarna gætu verið slóðar að hluta til. Hugsanlega þarf að vaða svo tökum með vaðskó og þurrklút. 

Erfiðleikastig:

Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir miðlungslangan könnunarleiðangur um grónar og grýttar brekkur upp og niður nokkra tinda og gíga í grónu hrauni að hluta til.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér:  

Share This Event

bottom of page