top of page

Baula í febrúar

Sat, Feb 10

|

#söfnum öllum mánuðum á Baulu og Heklu

Einstök ganga á eitt sérstakasta fjall landsins sem allir verða að upplifa. Farið bestu leiðina um norðuröxlina sem er greiðfærust en við vetraraðstæður svo jöklabroddar og ísexi er nauðsynlegur búnaður allra.

Baula í febrúar
Baula í febrúar

Dagsetning og tími

Feb 10, 2024, 8:00 AM – 7:00 PM

#söfnum öllum mánuðum á Baulu og Heklu, Baula, 311, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 9. febrúar 2024 kl. 20:30:00 - frábær mæting og veðurspá:

Skráðir eru 13 manns: Aníta, Birgir, Björg, Fanney, Ingunn, Jaana, Karen, Maggi, Siggi, Sighvatur, Sjöfn Kr., Steinar R. og Örn.

Mikilvægar tilkynningar:

*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra, búast má við snjófæri frá fjallsrótum.

*Höfum fös, laus og sun í sigtinu út frá veðurspá en stefnum helst á laugardag. Metum veðurspá fram eftir vikunni, sjá umræðuþráð á lokaða fb-hópi Toppfara fram að brottför. 

*Fólksbílafært en betra að vera á stærri bílum í þessu fannfergi.

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.

Leiðsögn:

Örn. 

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18 - 19:00

Aksturslengd:

Um 1,5+ klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg, stutt stopp í Olís Borgarnesi og ekið áfram Vesturlandsveg inn að Norðurárdal þar sem beygt er til vinstri inn þjóðveg F60 í átt að Bröttubrekku en stuttu áður er bílum lagt við vegakantinn og gengið af stað austan við Bjarnardalsá.  

Hæð:

Um 947 m.

Hækkun:

Um 942 m miðað við 137 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 14+ km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið grýtta aflíðandi leið að fjallinu sem ekki er hægt að taka augun af og fljótlega þegar að fjallinu er komið hefst brölt í grýttum brekkum sem eru brattar en vel færar alla leið upp á tind. Búast má við snjó í fjallinu og þá er nauðsynlegt að vera með jöklabrodda og ísexi sem og keðjubrodda eftir því hvernig færið verður á staðnum. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar stutta vegalengd en drjúga dagsgöngu með heilmiklu brölti í grýttum brekkum sem eiga varla sinn líka á Íslandi enda er Baula í algerum sérflokki hvað yfirferð og landslag varðar.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Deildu hér

bottom of page