Sun, Jan 21
|#Bláfjallahnúkar
Bláhnúkar og Vífilsfell baksviðsmegin óhefðbundna leið
Mjög spennandi ganga óhefðbundna nýja leið á hnúkana sem tengja Bláfjöllin við Vífilsfellið þar sem brölt er upp snarpar brekkurnar vestan megin og klöngrast um klettaborgir sem fáir fara um. Tilvalin ganga fyrir nýliða og þá sem vilja frekar stuttar göngur í vegalengd og tíma.
Time & Location
Jan 21, 2024, 10:00 AM – 3:30 PM
#Bláfjallahnúkar, Vífilsfell, 206, Iceland
About the Event
Uppfært 20. janúar 2024 kl. 17:00:
Skráðir eru 4 manns: Jaana, Sjöfn Kr., Þórkatla og Örn en fleiri meldaðir á fb - vinsamlegast staðfestið með greiðslu.
Nýjustu tilkynningar:
*Jöklabroddar og ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra. Eigum síður von á að þurfa að nota jöklabroddana en nauðsynlegt að taka þá með.
*Þjálfarar geta lánað eitt sett af ísexi og broddum.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Örn.
Brottför:
Kl. 10:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 15:30.
Aksturslengd:
Um 15 mín. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Ekið um Suðurlandsveg og beygt til hægri inn Bláfjallaveg og hann ekinn stuttlega þar til komið er að afleggjara á vinstri hönd neðan við Bláfjallahnúkana þar sem bílum er lagt.
Hæð:
Um 655 m.
Hækkun:
Um 600 m miðað við 98 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 10 - 11 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .
Göngutími:
Um 4 - 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Gengið í mosaslegnu hrauni til að byrja með og svo upp snarpar, grýttar brekkurnar neðan við Bláfjallahnúkana og komið upp á meginland þeirra þar sem brölt er upp og niður hnúkana tvo eða þrjá og yfir á móbergsslegið Vífilsfellið um miklar klettaborgir sem fáir fara um en þarna er komið baksviðsmegin á Vífilsfellið og farið hefðbundna leið upp efsta hlutann á því. Til baka er aftur farið um klettaborgirnar en svo um aðra mjög flotta leið niður gilið sem fáir þekkja en á þessari leið nær sólin að skína á göngumenn allan tímann meðan hún er á lofti svo hún hentar mjög vel á þessum árstíma.
Erfiðleikastig:
Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta dagsgöngu með ágætis brölti í brekkum og upp og niður hnúka og klettaborgir einstaklega svipmikla leið með miklu útsýni.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.