
Blákollur og félagar átta tinda kyngimagnað leið yfir milli Hafnarfjalls og Skarðsheiðar.
Mon, May 01
|Raudhahnukafjall, 301, Iceland
Mögnuð, fjölbreytt og mjög sjaldfarin leið um hulinn fjallasal milli Hafnarfjalls og Skarðsheiðar sem við bjuggum til árið 2012 og gefur fágæta sýn á tignarlega tinda Skarðsheiðar, Skessuhorns, Hróarstinda og Hafnarfjalls í landslagi sem skiptir stöðugt litum, lögun, bergi og fjallasýn.


Dagsetning og tími
May 01, 2023, 7:30 AM – 6:00 PM
Raudhahnukafjall, 301, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 30. apríl kl. 11:00:
Skráðir eru 9 manns: Agnar, Fanney, Gustav, Jaana, Johan, Linda, Sigrún Bj. , Tinna + Örn þjálfari.
Nýjustu tilkynningar:
*Fólksbílafært, ferja þarf bíla milli upphafs- og endastaðar en það er fljótlegt á þessari leið.
*ATH, þeir sem mættu á Þórólfsfellið á föstudag greiða eingöngu 3.000 kr. fyrir þessa ferð.
*Ljósmynd ferðar er tekin ofan af Skessuhorni 12. júní 2021 þar sem leiðin blasir við með Rauðuhnúkafjall gult af líparíti í miðju leiðarinnar. Bak við lægri fjöllin rís Hafnarfjallið dekkra að sjá. Sannkallaður hulinsheimur sem allt of fáir skoða.