top of page

Blikdalur Esju - níu tinda magnaða og greiðfæra hringleið

Sat, Apr 13

|

Esjudalirnir

Kyngimögnuð hringleið um dal fjögur af átta í Esjunni á árinu 2024 þar sem gengið verður kringum lengsta dal hennar á alls átta tinda, Arnarhamar, Smáþúfur, Kambshorn, Kerhólakamb, Kistufell nyrðra, Selfjall, Tindstaðafjall, Dýjadalshnúk og Melahnúk.

Registration is Closed
See other events
Blikdalur Esju - níu tinda magnaða og greiðfæra hringleið
Blikdalur Esju - níu tinda magnaða og greiðfæra hringleið

Time & Location

Apr 13, 2024, 8:00 AM – 6:00 PM

Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland

About the Event

Uppfært 12. apríl 2024 kl. 19:20:

Skráðir eru 11 manns:  (Áslaug), Birgir, Björg, Dina, Gulla, Gunnar Viðar, Jaana, Sjöfn Kr., Stefán G., Þórkatla+ Örn þjálfari. 

Nýjustu tilkynningar:

*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra. Að ganga á jöklabroddum með ísexi þjálfast fyrst og fremst með notkun, svo grípum hvert tækifæri sem gefst yfir veturinn til að setja á okkur broddana, svo okkur sé það tamt að nota þá. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18 - 19:00.

Aksturslengd:

Um 20 mín. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni að bílastæðinu við vigtarplanið stuttu áður en komið er að Hvalfjarðargöngunum. 

Hæð:

Um 840  m.

Hækkun:

Um 1.100 m miðað við 109 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 23 - 24 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 8 - 9 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Farið öfuga leið miðað við árið 2010 og byrjað á Arnarhamri og Smáþúfum upp þéttar en greiðfærar, grónar og grýttar brekkurna og áfram upp á meginland Esjunnar með smá brölti upp Kambshornið. Leiðin er greið frá Kambshorninu og allan hringinn en aðeins brölt niður þéttar brekkurnar á Dýjadalshnúk. Ekki verður farið á Hábungu né Þverfellshorn sem við gerðum árið 2010 (25,2 km) heldur haldið sig við glæsilegar brúrnirnar yfir Blikdal sem gefa áhrifamikið útsýni út þennan 7 kílómetra djúpa dal. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir  langa en greiðfæra dagsgöngu með smávegis brölti upp Kambshornið og svo niður af Dýjadalshnúki en annars um léttar, aflíðandi brekkur og fjallsbrúnir. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page