
Djúpadalsborgir og Bollafell um Sandvatn og Myrkavatn frá Brynjudal í Hvalfirði
Sat, Apr 05
|Brynjudalur, 276, Iceland
Spennandi könnunarleiðangur nýja leið um gljúfrin innst í Brynjudal upp á fjallsbungurnar ofan hans að vötnunum tveimur sem varða Leggjabrjótsleiðina á ljúfri dagleið með Botnssúlurnar og fjöll Hvalfjarðar allt í kring, þar sem lækir, ár, vötn, gil og gljúfur slá tón dagsins.


Dagsetning og tími
Apr 05, 2025, 10:00 AM – 5:00 PM
Brynjudalur, 276, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 4. apríl 2025:
Skráðir eru x manns: + Bára og Örn.
Mikilvægar tilkynningar:
*Fólksbílafært alla leið en betra að vera á hærri bílum síðasta kaflann inn Brynjudal ef hann er fær (leggjum annars þar sem malbikið endar).
*Keðjubroddar nægja á þessari leið.
*Farið yfir læki og ár og nauðsynlegt að vera með vaðskór + þurrklútur og hugsanlega er leiðin mýrlend (eða leysingavatn efst) og því betra að vera vel skóaður í þessari ferð og með varasokka í bakpokanum.