top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Djúpadalsborgir og Bollafell um Sandvatn og Myrkavatn frá Brynjudal í Hvalfirði

Sat, May 30

|

Brynjudalur, 276, Iceland

Spennandi könnunarleiðangur nýja leið um gljúfrin innst í Brynjudal upp á fjallsbungurnar ofan hans að vötnunum tveimur sem varða Leggjabrjótsleiðina á ljúfri dagleið með Botnssúlurnar og fjöll Hvalfjarðar allt í kring, þar sem lækir, ár, vötn, gil og gljúfur slá tón dagsins.

Djúpadalsborgir og Bollafell um Sandvatn og Myrkavatn frá Brynjudal í Hvalfirði
Djúpadalsborgir og Bollafell um Sandvatn og Myrkavatn frá Brynjudal í Hvalfirði

Dagsetning og tími

May 30, 2026, 9:00 AM – 4:00 PM

Brynjudalur, 276, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 28. maí 2026:


Skráðir eru x manns: + Bára og Örn.


Mikilvægar tilkynningar:

*Fólksbílafært alla leið en betra að vera á hærri bílum síðasta kaflann inn Brynjudal ef hann er fær (leggjum annars þar sem malbikið endar).

*Tökum vaðskó og þurrklút meðferðis þar sem vaða þarf Brynjudalsá í lokin og hugsanlega fleiri læki/ár.

*Þetta er könnunarleiðangur þar sem við áætlum vegalengd og tímalengd eftir bestu getu, en sem fyrr komumst við að því á staðnum sem er okkar uppáhalds.


Deildu hér

bottom of page