top of page

Sun, Mar 06

|

#EsjanÖll2022

Dýjadalshnúkur, Tindstaðafjall, Selfjall, Melahnúkur og Hnefi í Lokufjalli frá Kerlingargili #EsjanÖll2022

Tignarlegir og svipmiklir tindar baksviðs í Esjunni þar sem farið er mjög fallega leið upp með stórfenglegu Kerlingargili og frekar bratta en vel færa leið á hnúka Tindstaðafjalls og Dýjadals og yfir á Selfjall áður en haldið er niður bakdyramegin á okkar vel þekktu Melahnúk og Hnefa í Lokufjalli.

Registration is Closed
See other events
Dýjadalshnúkur, Tindstaðafjall, Selfjall, Melahnúkur og Hnefi í Lokufjalli frá Kerlingargili #EsjanÖll2022
Dýjadalshnúkur, Tindstaðafjall, Selfjall, Melahnúkur og Hnefi í Lokufjalli frá Kerlingargili #EsjanÖll2022

Time & Location

Mar 06, 2022, 8:00 AM – 3:00 PM

#EsjanÖll2022, Reykjavík, Iceland

Guests

About the Event

Uppfært 5. mars 2022:

Skráðir eru 15 manns:  Bára, Bjarni, Fanney, Doddi, Inga Guðrún, Jaana, Njóla, Kolbeinn, Linda, Ólafur Vignir, Siggi, Silla, Sjöfn Kr., Tinna, Örn. 

Hámark 30 manns, lágmark 15 manns.

Nýjustu tilkynningar:

*Aflýsum þessari ferð vegna veðurspár og dræmrar mætingar. Hefðum farið með flottan meldaðan hóp ef veðurspáin hefði verið betri. Náum öllum þessum Esjutindum þegar við göngum Esjuna endilanga frá Móskörðum og niður Dýjadalshnúk í apríl, við getum þetta !

*Færum þessa ferð fram á sunnudaginn 6. mars vegna veðurspár og metum veðurspána á laugardag endanlega. 

*Færum þessa ferð yfir á laugardaginn 5. mars í von um nægilega stóran veðurglugga þá. Esjan endilöng er færð yfir á laug 2. apríl vegna veðurs, færðar ofl. og Eilífsdalurinn færður framar í staðinn. 

*Frestum þessari ferð til föstudags 4. mars kl. 12-18:00 ef veður er gott þá og ekki hægt að fara Esjuna endilanga á laugardeginu. Vöktum veðurspána í næstu viku. 

*Frestum þessari ferð fram á sunnudag 27/2 kl. 9 - 16:00 - ákvörðun tekin endanlega í hádegi á laugardag. 

*Frestum þessari ferð um viku til laug 26/2 vegna veðurs. 

*Ferjum bíla mjög stutta leið milli byrjunar- og endastaðar. Skiljum helming bíla eftir í mynni Blikdals við viktarplanið þar sem við endum gönguna og keyrum á hinum helmingi bíla inn í Miðdal að Kerlingargili (um 5-10 mín akstur á milli staða). 

Verð:

Kr. 4.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 6.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 8.000 fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Ferð er ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Hámark 30 manns, lágmark 15 manns.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng:  https://www.yr.no/nb/v%C3%A6rvarsel/daglig-tabell/2-3412445/Island/H%C3%B6fu%C3%B0borgarsv%C3%A6%C3%B0i/Kj%C3%B3sarhreppur/Tindsta%C3%B0ahn%C3%BAkur 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 15:00 miðað við 30 mín akstur, 5 mín ferjun bíla,  5 klst. göngu og græjun við bíla fyrir og eftir göngu.

Aksturslengd:

Um 30 mín + 5-10 mín að sækja bíla við upphafsstað í lok göngu. 

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össur um Vesturlandsveg gegnum Mosfellsbæ og út úr borginni þar til komið er að vigtarplaninu áður en komið er að Hvalfjarðargöngunum. Helmingur bíla skilinn eftir og haldið áfram á hinum bílunum þar sem fljótlega er beygt til hægri áður en komið er að Hvalfjarðargöngunum og ekið inn Miðdal þar til komið er að litlu malarstæði neðan við Dýjadalshnúk stuttu frá Kerlingargili. Bílar sóttir svo í Miðdal í lok göngu. 

Hæð:

Um 785 m.

Hækkun:

Um 850 m miðað við 60  m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 11  km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið upp með hrikalegum brúnum Kerlingargils á snarpri leið með heilmikilli hækkun allan tímann og þegar komið er upp fyrir gilið eru brekkurnar áfram frekar brattar en vel færar alla leið á Tindstaðafjall þar sem áfram er gengið inn og hærra á Selfjall sem gnæfir yfir Blikdal Esjunnar og þaðan lækkum við okkur yfir á Tindstaðahnúk og Dýjadalshnúk og bröltum brattar brekkurnar aftur niður til að byrja með en tökum svo vinstri beygju og tökum stefnuna á Melahnúk og áfram niður bakdyramegin á Hnefa þaðan sem við þræðum brúnir Lokufjalls og endum í klettunum neðst áður en komið er niður með gljúfri Blikdalsár að vigraplaninu við þjóðveg 1. 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu upp frekar brattar brekkur og svo mjög skemmtilega niðurleið þar sem komið er á kunnuglegar slóðir ofan frá og nú í dagsbirtu en ekki myrkri eins og yfirleitt á neðri tindum dagsins. 

Búnaður:

Sjá upptalningu undir búnaður - farið vel yfir listann og passið að hafa allan tindferðabúnað meðferðis, góða skó, hlý föt, góðan hlífðarfatnað, vettlinga og höfuðfat og höfuðljós. Keðjubroddar, jöklabroddar og ísexi nauðsynlegur búnaður allra þar sem reyna mun á búnað í þéttum brekkunum. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér: 

Share This Event

bottom of page