top of page

Eilífsdalur Esju á Þórnýjartind, (Eilífstind), Hábungu, "Eilífsklett", Skálatind, Paradísarhnúk og Nónbungu.

Fri, Mar 29

|

Esjudalirnir

Kyngimögnuð hringleið um dal þrjú af átta í Esjunni á árinu 2024 þar sem gengið verður um stórbrotnar fjallsbrúnir á hæsta tind Esjunnar og sex aðra tinda kringum glæsilegan dal.

Registration is Closed
See other events
Eilífsdalur Esju á Þórnýjartind, (Eilífstind), Hábungu, "Eilífsklett", Skálatind, Paradísarhnúk og Nónbungu.
Eilífsdalur Esju á Þórnýjartind, (Eilífstind), Hábungu, "Eilífsklett", Skálatind, Paradísarhnúk og Nónbungu.

Time & Location

Mar 29, 2024, 8:00 AM – 6:00 PM

Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland

About the Event

Uppfært 27. mars 2024: 

Skráðir eru 3 manns:  Birgir, Jaana, Örn. 

Nýjustu tilkynningar:

*Höfum þessa ferð um páskana þar sem föstudagurinn langi, laug og sunnudagur (páskadagur) koma til greina sem göngudagar. Tinhyrna og Þorgeirshyrna eru á hliðarlínunni á fim (skírdagur) og mán (annar í páskum) ef veður og áhugi leyfir. 

*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra. Að ganga á jöklabroddum með ísexi þjálfast fyrst og fremst með notkun, svo grípum hvert tækifæri sem gefst yfir veturinn til að setja á okkur broddana, svo okkur sé það tamt að nota þá. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Bára og Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  17 - 18:00.

Aksturslengd:

Um 40 mín. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni og beygt til hægri inn Miðdal stutt hjá Hvalfjarðargöngunum þar sem bílum er lagt á góðu malarstæði neðan við Kerlingargilið.

Hæð:

Um 920 m.

Hækkun:

Um 1.112 m miðað við 109 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 21 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 7 - 8 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Upp þéttar, grónar og svo grýttar brekkur og klettahjalla á Þórnýjartind með heilmiklu brölti þar en þegar komið er á Þórnýjartind tekur við létt aflíðandi ganga um meginland Esjunnar þar sem komið er reglulega fram á brúnir fjallgarðsins í stórkostlegu útsýni og gengið á hina ýmsu tinda á leiðinni, meðal annars Hábungu sem er hæst í þessum mikla fjallgarði. Leiðin er því greið allan tímann nema þegar brölt er upp á Þórnýjartindinn. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar langa en greiðfæra dagsgöngu með ágætis brölti í byrjun en svo léttri yfirferð.  

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page