
Eilífsdalur Esju á Þórnýjartind, (Eilífstind), Hábungu, "Eilífsklett", Skálatind, Paradísarhnúk og Nónbungu. (1)
Fri, Apr 05
|Esjudalirnir
Kyngimögnuð hringleið um dal þrjú af átta í Esjunni á árinu 2024 þar sem gengið verður um stórbrotnar fjallsbrúnir á hæsta tind Esjunnar og sex aðra tinda kringum glæsilegan dal.


Dagsetning og tími
Apr 05, 2024, 8:00 AM – 6:00 PM
Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 4. apríl 2024 kl. 21:30:00:
Skráðir eru 7 manns: Aníta, Bára, Jaana, Sighvatur, Sigrún Bjarna., Sjöfn Kr., Örn.
Nýjustu tilkynningar:
*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra. Að ganga á jöklabroddum með ísexi þjálfast fyrst og fremst með notkun, svo grípum hvert tækifæri sem gefst yfir veturinn til að setja á okkur broddana, svo okkur sé það tamt að nota þá.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta.