Sun, Aug 25
|Esjudalirnir
Eyjadalur Esju baksviðsmegin á Móskarðahnúka og um hin mögnuðu Laufskörð níu tinda hringleið
Mjög spennandi ný hringleið um dal fimm af níu í Esjunni á árinu 2024 þar sem gengið verður kringum austasta dal hennar á alls níu tinda; Möðruvallaháls, Heimrahögg, Fremrahögg, Trönu, Móskarðahnúka, Laufskörð, Seltind, Esjuhorn og loks Sandsfjall.
Time & Location
Aug 25, 2024, 9:00 AM – 6:00 PM
Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland
Guests
About the Event
Uppfært 22. ágúst 2024:
Skráðir eru 4 manns: Aníta, Bára, Sjöfn Kr. og Örn.
Nýjustu tilkynningar:
*Grípum gott veður og sumarfæri til að fara þessa spennandi leið um Laufskörð og félaga kringum þennan ægifagra dal.
*Ljósmynd af Eyjadal úr Móskörðum þann 16. ágúst 2024 þar sem sést í Seltind, Esjuhorn og Sandsfjall vinstra megin og hluti af fjallgarði Trönu hægra megin.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Bára og Örn.
Brottför:
Kl. 09:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 18:00.
Aksturslengd:
Um 30 mín. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni, inn Hvalfjörð og svo inn að Meðalfellsvatni, keyrt meðfram vatninu og til hægri inn sumarhúsabyggð við Sandlund þar sem bílum er lagt á malarstæði við veginn í mynni Eyjadals.
Hæð:
Um 814 m.
Hækkun:
Um 1.200 m miðað við 90 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 17 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngutími:
Um 7 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Þetta er eini dalur Esjunnar sem við höfum ekki áður hringað en þó gengið á alla tindana beggja vegna í ýmsum leiðarútgáfum. Greiðfær, gróin og grýtt leið þar sem Móskarðahnúkar eru hæstir allra og eina klöngrið er um Höggin tvö og svo um Laufskörðin . Farið upp grónar brekkur Möðruvallahálss og fjallsásinn rakinn til suðurs um svipmiklu hryggina Heimrahögg og Fremrahögg sem er grýtt en vel fær leið og áfram grýtta leið á Trönu sem gefur stórkostlegt útsýni yfir Eyjadalinn og Móskarðahnúkana alla baksviðsmegin. Brölt bakdyramegin upp á hæsta hnúk Móskarða og hnúkarnir raktir allir að Laufskörðum. Farið um Laufskörð á tæpistíg sem er öruggur og vel fær að sumri til og loks farið greiðfæra og grýtta og gróna leið um Seltind, Esjuhorn og Sandsfjall þar sem ljúfar grasbrekkurnar taka smám saman við þegar hringnum er lokað. Móskarðah
Erfiðleikastig:
Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar langa en greiðfæra dagsgöngu með smávegis klöngri en annars almennt á greiðfærri og fljótfarinn leið með stórkostlegu útsýni yfir Esjufjallgarðinn allan austan megin og beggja vegna til norðurs og suðurs.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.