top of page

Sat, May 04

|

Esjudalirnir

Flekkudalur Esju - níu tinda yndisleið um glæsilegar fjallsbrúnir

Einstaklega falleg hringleið um dal fimm af átta í Esjunni á árinu 2024 greiðfæra leið á Nónbungu, Skálartind, Paradísarhnúk, Eilífsklett, Hátind, Laufskörð, Seltind, Esjuhorn og Sandsfjall með miklu útsýni beggja vegna af Esjunni og um allan fjallgarðinn.

Flekkudalur Esju - níu tinda yndisleið um glæsilegar fjallsbrúnir
Flekkudalur Esju - níu tinda yndisleið um glæsilegar fjallsbrúnir

Time & Location

May 04, 2024, 8:00 AM – 7:00 PM

Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland

About the Event

Uppfært 3. apríl 2024:

Skráðir eru x manns:  + Örn. 

Nýjustu tilkynningar:

*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður, ekki ætti að vera þörf á jöklabroddum og ísexi á þessari leið á þessum árstíma en metum það endanlega þegar nær dregur. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  19:00.

Aksturslengd:

Um 45 mín. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni og við Hvalfjarðargöngin er beygt til hægri inn F47 inn Hvalfjörðinn og sá vegur ekinn þar til tekin er hægri beygja inn Meðalfellsveg F461 og sá vegur ekinn meðfram Meðalfellsvatni hálfan hring þar til komið er að bænum Flekkudal þar sem bílum er lagt með leyfi staðarhaldara. 

 

Hæð:

Um 920 m.

Hækkun:

Um 1.117 m miðað við 62 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 21 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 8 - 9 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Upp þéttar og grónar brekkurnar á Nónbungu og svo aflíðandi leið í grjóti og möl og svo snjó upp á meginlandi Esjunnar þar sem tindar og fjallsbrúnir eru rakin allan hringinn með viðkomu á stórskostlegum útsýnisstöðum. Hvergi tæpistigur né mjög brattar brekkur og hentar þessi leið því öllum.

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir langa dagsgöngu á greiðfærri leið um glæsilegar fjallsbrúnir þar sem hvergi eru tæpistigur né brattar brekkur en stórkostlegt útsýni.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Share This Event

bottom of page