Sun, Jan 14
|Esjudalirnir
Gljúfurdalur Esju á Laugargnípu, Kerhólakamb, Þverfellshorn, Langahrygg og Búa #Esjudalirnir
Frekar stutt en glæsileg hringleið um fyrsta dalinn í Esjunni af átta, þar sem við ætlum að þræða okkur um þá alla og safna öllum tindum Esjunnar á árinu 2024.
Time & Location
Jan 14, 2024, 9:00 AM – 3:00 PM
Esjudalirnir, Esjan, 162, Iceland
Guests
About the Event
Uppfært 12. janúar 2024 kl. 15:00:
Skráðir eru 17 manns: Andrea Ævars., Aníta, (Ása), Birgir, Björg, Davíð, Fanney, Gulla, Ingunn, Jaana, Kjartan, Linda, Maggi, Sighvatur, Silla, Örn.
Nýjustu tilkynningar:
*Staðfest brottför í þessa göngu á sunnudag, mun betri spá þann dag, hæglætisveður, úrkomulaust og léttskýjað svo sólin mun slá gylltum töfrum á allt þennan dag og gefa einstaka birtu.
*Jöklabroddar, ísexi og keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra, okkur sýnast litlar líkur á að jöklabroddarnir fari í notkun eftir þennan langa hlýjindakafla, en til öryggis er best að taka þennan búnað með, þar sem komið er frost á sunnudag og eins ef harðir skaflar eru efst sem þarf að fara yfir, enda gott að eiga þennan búnað og temja sér notkun hans yfir veturinn. Að ganga á jöklabroddum með ísexi þjálfast fyrst og fremst með notkun, ekki á námskeiðum, svo grípum hvert tækifæri sem gefst yfir veturinn til að setja á okkur broddana svo okkur sé það tamt að nota þá. Sjá umræður fram að brottför á lokaða fb-hópi Toppfara.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta.
Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.
Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.
Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:
Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.
Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.
Skráning og skilmálar:
Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst.
Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.
Veðurspár:
Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng.
Leiðsögn:
Örn.
Brottför:
Kl. 09:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.
Heimkoma:
Um kl. 15:00.
Aksturslengd:
Um 20 mín. Fólksbílafært.
Akstursleiðarlýsing:
Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg meðfram Esjunni þar til komið er að hringtorgi sem liggur að bænum Esjubergi, sá afleggjari tekinn en ekki farið að bænum heldur keyrt til baka gamla veginn, Stekkjarveg þar til komið er að malarafleggjaranum sem liggur að upphafsstað göngu. ATH þetta er breytt aðkoma frá því við vorum þarna síðast, svo verum í samfloti til að fara rétta leið.
Hæð:
Um 851 m.
Hækkun:
Um 778 m miðað við 30 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngulengd:
Um 11 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Göngutími:
Um 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.
Gönguleiðin:
Á slóða upp snarpar og grýttar en vel færa brekkuna yst undir kambinum og áfram upp grýttar brekkurnar fram á stórkostlegar brúnir Laugargnípu. Þaðan farið yfir á Kambshornið og upp á Kerhólakamb sem er hæsti tindur dagsins og þaðan um grýtta heiðina á Þverfellshorn þar sem farið er niður hefðbundna leið um klettabeltið eða snjóbrekkuna. Þrætt niður með Langahrygg út á Búa og fram á snarpar brekkurnar í vestri til baka í bílana. Endanlegt leiðarval metið á staðnum eftir færi.
Erfiðleikastig:
Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir frekar stutta dagsgöngu en ágætlega krefjandi í snörpum brekkum, á slóða að hluta til.
Búnaður:
Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka, hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til.
Tryggingar:
Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.
FB-viðburður: