
Grafartindar í Dölunum
Sat, Jun 06
|Brattabrekka
Mjög spennandi ganga á sjaldfarna fjallstinda með heilmikinn systkinasvip við Baulu enda rísa þeir nokkrir áþekkir henni í fjallgarðinum í Dölunum og kalla alltaf á mann þegar keyrt er um Dalina á leið vestur á firði.


Dagsetning og tími
Jun 06, 2026, 9:00 AM – 5:30 PM
Brattabrekka, Brattabrekka, 371, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 5. júní 2026:
Skráðir eru 9 - 14 manns: (Ása + Jón), Bára, Berta, Birgir Martin, Bjarni K., Björg, (Gulla), (Hermína), Hjörtur, (Kristrún), Olli, Silla, Örn ofl. á fb - STAÐFEST BROTTFÖR !
Mikilvægar tilkynningar:
*Ljósmyndar ferðar tekin í akstri á leið til Reykjavíkur í gegnum Dalina í könnunarleiðangri þjálfara 21. júní 2024 um Drangaskörð vestur á Ströndum, þegar við ákváðum að á þessi fjöll yrðum við að ganga einn daginn. Athugið að við erum ekki alveg viss hvort þetta sé rétt mynd, komumst að því hvort Grafartindar séu einmitt þetta fjall eða annar fjallsmúli á svæðinu, erfitt að fullyrða alveg út frá ljósmyndinni.
Verð:
Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi.