top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Grillirahryggur og Beinabrekka í Víðhamrafjalli Hvalfirði

Sat, Dec 06

|

Botnsdalur, 301, Iceland

Spennandi könnunarleiðangur um sérkennileg örnefni á fornri þjóðleið við Síldarmannagötur þar sem við göngum niður með Glym í bakaleiðinni. Getur verið að þessi hryggur eigi að heita "Grillir Á hryggur" ? Þó það ætti þá frekar að vera "Grillir í" ?

Grillirahryggur og Beinabrekka í Víðhamrafjalli Hvalfirði
Grillirahryggur og Beinabrekka í Víðhamrafjalli Hvalfirði

Dagsetning og tími

Dec 06, 2025, 9:00 AM – 5:00 PM

Botnsdalur, 301, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært í hádeginu 5. desember 2025 - staðfest brottför hér með:

Skráðir eru 13 - 15 manns: (Ása + gestur), Bára, Birgir, Björg, Brynjar, Fanney, Halldóra Kr., Helgi, Magnús Már, Ragnheiður, Sighvatur, Sjöfn Kr., Steinar R. og Örn.


Mikilvægar tilkynningar:

*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra (ekki þörf á jöklabroddum en gott að taka með ef menn vilja æfa notkun þeirra).

*Fólksbílafært.

*Tökum höfuðljós meðferðis til öryggis ef tafir verða, þar sem dagurinn er orðinn stuttur en við endum gönguna í dagsbirtu og ætlum að vera komin í bæinn kl. 17:00 !


Deildu hér

bottom of page