top of page

Sat, Jul 06

|

Skaftafell

Háasúla - fáfarnasta Botnssúlan á eftir Miðsúlu

Mjög spennandi ganga á Botnssúlu sem er mjög fáfarin en sker sig svolítið frá hinum þar sem hún stings snarbrött út úr fjallgarðinum norðan megin og gefur stórkostlegt sjónarhorn á hinar Botnssúlurnar

Registration is Closed
See other events
Háasúla - fáfarnasta Botnssúlan á eftir Miðsúlu
Háasúla - fáfarnasta Botnssúlan á eftir Miðsúlu

Time & Location

Jul 06, 2024, 8:00 AM – 7:00 PM

Skaftafell, Botnssúlur, 806, Iceland

About the Event

Uppfært 5. júlí 2024 kl. 16:45:

Skráðir eru 11 manns: Áslaug, Berta, Birgir, Gulla, Inga, Oddný T., Ólafur E., Sighvatur, Sjöfn Kr., Steinar og Örn - en fleiri eiga eftir að staðfesta sem melduðu sig áhugasama. Vinsamegast greiðið til að staðfesta þátttöku.

Mikilvægar tilkynningar: 

*Staðfest brottför á laugardaginn, bongóblíðuveðurspá ! 

*Betra að vera á hærri fólksbílum inn að Svartagili. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Þorgeirsfell - Long term forecast

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 8:00 á slaginu frá Össuri, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 18:00 í Reykjavík. 

Aksturslengd:

Um 1 klst. frá Reykjavík.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Vesturlandsveg, Þingvallaleið en rétt áður en komið er að þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum er beygt inn Uxahryggjaleið þar sem fljótlega er beygt til vinstri malarveg að fjallsrótum. Betra að vera á hærri bílum þennan síðasta kafla. 

Hæð:

Um 1.035 m.

Hækkun:

Um 1.000 m miðað við 170 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 16 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 7 - 8 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið í grónu landi og svo grýttu að Botnssúlunum og farið milli Miðsúlu og Súlnabergs sem fáir fara og gengið undir Miðsúlu að Háusúlu þar sem við tekur létt brölt og svo klöngur þar sem fara þarf varlega en ágætis hald er í klöppunum. Leiðin er fær öllu vönu fjallgöngufólki og þeim sem ekki eru að glíma við mikla lofthræðslu. Tindur Háusúlu er gróinn og fagur og gefur einstakt útsýni til hinna Botnssúlnanna og fjalla allt í kring upp til Langjökuls og yfir Suðurlandið og Suðvesturhorn landsins. Syðsta súla, Vestursúla og Norðursúla eru algengar uppgöngu í Botnssúlum en fáir fara á Háasúlu og Miðsúlu og því er tilvalið að grípa tækifærið þeir sem eiga þessa alltaf eftir. 

Erfiðleikastig:

Um 3 af 6 eða fært öllum í góðu gönguformi fyrir frekar langa og krefjandi dagsgöngu í frekar grýttu en greiðfæru landslagi með ágætis brölti og klöngri upp sjálfan tindinn. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð einnig á opinni fb-síðunni www.facebook.com/fjallgongur.is = (20+) Facebook 

Share This Event

bottom of page