top of page

Hafnarfjall á alla níu tindana kyngimagnaða hringleið.

Thu, May 09

|

Hafnarfjall, 301, Iceland

Mjög tignarleg hringleið á alla níu tinda Hafnarfjalls með viðkomu að geilinni góðu í einstaklega glæsilegum fjallasal með mögnuðu útsýni til allra átta.

Hafnarfjall á alla níu tindana kyngimagnaða hringleið.
Hafnarfjall á alla níu tindana kyngimagnaða hringleið.

Dagsetning og tími

May 09, 2024, 8:00 AM – 5:00 PM

Hafnarfjall, 301, Iceland

Nánari upplýsingar

Uppfært 8. maí 2024: 

Skráðir eru x manns: + Örn. 

Nýjustu tilkynningar:

*Fólksbílafært.

*Keðjubroddar eru nauðsynlegur búnaður allra í þessari ferð. 

*Ljósmynd auglýsingar: Haustfagnaðarferð Toppfara 2. september 2010 þar sem skemmtiatriði voru á hverjum tindi. 

Toppfarar.is - Tindur 45 - Hafnarfjall

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 08:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  17:00.

Aksturslengd:

Tæp 1 klst. Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Keyrt frá Össuri Grjóthálsi 5 um Vesturlandsveg en stuttu áður en komið er að Borgarfjarðarbrú er afleggjari til hægri á malarstæði neðan við Hafnarfjall.

Hæð:

Um 857 m á Gildalshnúk og lægra á hina tindana.

Hækkun:

Um 1.300 m miðað við 27 m upphafshæð.

Göngulengd:

Um 13 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 7,5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið á slóða að mestu en heilmikið brölt milli tinda og smávegis klöngur á efstu tindum en vel fært öllu vönu göngufólki og einstakt landslag að ganga um allan tímann. 

Erfiðleikastig:

Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir miðlungserfiða dagsgöngu á frekar stuttri vegalengd en þeim mun seinfarnari á brölti og klöngri upp og niður alla níu tinda Hafnarfjalls. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

FB-viðburður: 

Deildu hér

bottom of page