
Hafnarfjallsöxl syðri og nyrðri um Vesturhnúk, Suðurhnúk og Gildalshnúk bakdyramegin um hrikalega flottan fjallgarð
Sat, Mar 08
|Hafnarfjall
Mjög spennandi og öðruvísi leið á Hafnarfjall þar sem þrætt er upp með Hafnarfjallsöxl syðri og komið bakdyramegin á Vesturhnúk, Suðurhnúk og Gildalshnúk áður en farið er niður hefðbundna leið norðan megin. Frekar stutt en glæsileg leið á magnað útsýnisfjall í hrikalega flottu landslagi.


Dagsetning og tími
Mar 08, 2025, 8:00 AM – 4:00 PM
Hafnarfjall , Hafnarfjall, 301, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 7. mars 2025:
Skráðir eru 8 manns: Aníta, Birgir, Guðný Ester, Siggi, Silla, Sjöfn Kr., Steinar R. og Örn þjálfari.
Mikilvægar tilkynningar:
*Fólksbílafært, en líklega betra að vera á stærri bílum malarveginn neðan við Ölver við fjallsrætur. Fimm manns deila sér niður á 2 bíla til að geta ferjað bíla.
*Ferjum bíla milli upphafs- og endastaðar, stuttur akstur á milli. Byrjum á að skilja helming bíla eftir við endastað göngunnar, við hefðbundinn hefðbundið bílastæði Hafnarfjalls norðvestan megin (gott bílastæði þar), og keyrum til baka að afleggjaranum að Ölveri undir Blákolli og leggjum bílunum þar við upphafsstað göngu neðan við sumarhúsabyggðina (vanalegur upphafsstaður á Hróarstinda,, þetta er EKKI bílastæðið við Blákoll NB). Um 10 mín tekur að keyra á milli.
*Keðjubroddar, ísexi og jöklabroddar nauðsynlegur búnaður allra NB. Þeir sem ganga með okkur á veturna þurfa að eiga þennan búnað, það er margfalt þess virði að eiga hann og komast…