
Hátindur Esju sunnan megin upp og niður Kattarhryggi
Sun, Oct 29
|Hátindur, 162, Iceland
Kyngimögnuð leið á Hátind Esjunnar um klettabeltið sunnan megin mjög skemmtilega leið og svo niður Kattarhryggi um mosagróna klettahjalla. Tilvalin dagsganga fyrir nýliða og þá sem vilja styttri göngur um helgar.


Dagsetning og tími
Oct 29, 2023, 10:00 AM – 4:00 PM
Hátindur, 162, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 28. október 2023 kl. 15:00:
Skráðir eru 11 - 12 manns: (Agnar), Aníta, Gerða, Jaana, Kjartan Rolf, Njóla, Magga Páls., Sigríður Lísabet, Sjöfn Kr., Þorleifur, Þórkatla, Örn þjálfari.
Nýjustu tilkynningar:
*Frábær veðurspá og mæting, logn, sól og hiti rétt yfir frostmarki, auð jörð og heiðskírt veður.
*Fólksbílafært.
*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra NB, ekki þarf ísexi og jöklabrodda þar sem enginn snjór er kominn á þessu svæði ennþá.