top of page
  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube
  • Twitter

Haustáskorun Toppfara - tökum 12 æfingafjöll rösklega fram að áramótum !

Thu, Dec 31

|

#fjallatími

Besta leiðin til að koma sér í og viðhalda góðu fjallgönguform er að ganga rösklega á fjöll. Tökum æfingafjöllin tólf og förum rösklega upp og niður og mælum tímann. Þeir sem ná öllum tólf fjöllunum og melda inn tímann sinn fara í pott og einn verður dreginn út sem vinnur sér inn árgjald í klúbbnum.

Haustáskorun Toppfara - tökum 12 æfingafjöll rösklega fram að áramótum !
Haustáskorun Toppfara - tökum 12 æfingafjöll rösklega fram að áramótum !

Dagsetning og tími

Dec 31, 2026, 10:00 AM – 11:00 PM

#fjallatími

Nánari upplýsingar

Tökum tólf rösklegar fjallgöngur á æfingafjöllin tólf, mælum tímann upp og svo alls upp og niður og meldum hann á lokaða Toppfarafésbókina. Þeir sem klára öll tólf fjöllin fara í pott þar sem dreginn verður einn út sem vinnur sér inn árgjald í klúbbnum. Regluleg, röskleg ganga á föllin á höfuðborgarsvæðinu eru ein besta leiðin til að koma sér í og viðhalda góðu fjallgönguformi. Verum með... af því það er svo gaman að vera í góðu formi og líða vel í fjallgöngu sama hvort gangan er löng eða ströng eða létt og ljúf !


Æfingafjöllin tólf eru eftirfarandi - allt hefðbundnar leiðir á slóða, leiðina sem flestir fara:


  1. Akrafjall á Háahnúk

  2. Ásfjall frá Haukahúsinu

  3. Búrfellsgjá

  4. Esjan upp að Steini


Deildu hér

bottom of page