
Hrafnabjörg á Hellismannaleið
Sat, Oct 10
|Landmannaleið
Mjög spennandi og frekar stuttur og léttur könnunarleiðangur á sjaldfarið fjall við Hellismannaleið þar sem gengið verður kringum vatnið í leiðinni. Þetta er fjallið og vatnið sem blöstu við þegar við gengum á Herbjarnarfell og Laufdalseggjar í fyrra.


Dagsetning og tími
Oct 10, 2026, 8:00 AM – 7:00 PM
Landmannaleið, Landmannaleið, 851, Iceland
Nánari upplýsingar
Uppfært 10. október 2026:
Staðfestir eru 17 manns: Ása, Bára, Björg, Chr, Guðný Ester, Guðrún Geirs, Helgi, Hjörtur, Inga, Linda, Maggi, Oddný Sif, Siggi, Sigrún Bj. + Kjartan gestur, Sjöfn Kr. og Örn.
Í hnotskurn:
Um 14 km á 6-7 klst. upp í 884 m hæð með um 400 m hækkun úr 580 m upphafshæð.
Gengið frá jeppaslóðanum og Helliskvíslin vaðin fljótlega (eða stikluð, fer eftir veðurfari) áður en gengið er upp gróna ása og svarta sanda að tagli Hrafnabjarga. Brölt upp á Hrafnabjörg á ágætis klöngri á allra færi og brölt eftir öllum fjallshryggnum til enda í norðri. Gengið á sandi, mosa, möl og grasi kringum vatnið og til baka að bílunum þar sem vaða/stikla þarf yfir Helliskvíslina aftur.
Takið með vaðskó þar sem við þurfum að vaða Helliskvíslina tvisvar (eða stikla) og tökum keðjubroddana meðferðis í bílinn og metum aðstæður á staðnum.