top of page

Sun, Apr 21

|

Hafnarfjörður

Hvirfill í Lönguhlíðarfjalli, Syðstu Bollar, Grindaskörð, Miðbollar og Stóri Bolli

Ný leið frá Leiðarenda upp Lönguhlíðarfjall og yfir á alla Bollana þar sem við skulum klöngrast upp alla gígana áður en við snúum til baka um Grindaskörðin og slóðina til baka í Leiðarenda. Kyngimagnað, formfagurt og litríkt landslag eldgíga og hrauns með skemmtilegu brölti á leið sem hentar öllum.

Registration is Closed
See other events
Hvirfill í Lönguhlíðarfjalli, Syðstu Bollar, Grindaskörð, Miðbollar og Stóri Bolli
Hvirfill í Lönguhlíðarfjalli, Syðstu Bollar, Grindaskörð, Miðbollar og Stóri Bolli

Time & Location

Apr 21, 2024, 10:00 AM – 4:30 PM

Hafnarfjörður, X5M4+RRJ, 221 Hafnarfjörður, Iceland

About the Event

Uppfært 20. apríl 2024 kl. 18:30:

Skráðir eru 7 manns: Aníta, Bára, Birgir, Jaana, Sjöfn Kr., Þórkatla og Örn.

Mikilvægar tilkynningar: 

*Keðjubroddar nauðsynlegir en EKKI þörf á jöklabroddum né ísexi. Leið sem hentar öllum. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Þorgeirsfell - Long term forecast

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 10:00 á slaginu frá Ásvallalaug Hafnarfirði. 

Heimkoma:

Um kl. 16 - 17:00.

Aksturslengd:

Um 15 mín Fólksbílafært.

Akstursleiðarlýsing:

Ekið frá Ásvallalaug um Krýsuvíkurveg þar til komið er að afleggjara til vinstri, Bláfjallaveginum gamla F417 þar sem keyrt er að  "Leiðarenda" þar sem helliririnn er (bílastæði á staðnum). 

Hæð:

Um 600 m.

Hækkun:

Um 690 m miðað við 150 m upphafshæð en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngulengd:

Um 16 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi. .

Göngutími:

Um 5 - 6 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Gengið frá þjóðveginum um gras, mosa og grjót upp og niður svipmikil fjöll og hraungíga í rótum jökulsins með ágætis brölti og klöngri á stöku stað eftir því hvert landslagið leiðir okkur en þarna gætu verið slóðar að hluta til. Hugsanlega þarf að vaða svo tökum með vaðskó og þurrklút. 

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir miðlungslangan könnunarleiðangur um grónar og grýttar brekkur upp og niður nokkra gullfallega  gíga í grónu hrauni að hluta til með léttri leið til baka um graslendurnar neðan við Lönguhlíðarnar.

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér:  

Share This Event

bottom of page