top of page

Sat, Oct 16

|

Iceland

Illasúla og Hattfell

Stórkostleg og frekar létt ganga á mjög sjaldfarið og einstaklega fallegt fjall á hálendinu við Markarfljót og Álftavatn á miðri Laugavegsgönguleiðinni með einstöku útsýni. Á heimleið ætlum við helst að ganga á Hattfell sem er alveg við akstursleiðina og er mjög stutt ganga en þeim mun brattari.

Registration is Closed
See other events
Illasúla og Hattfell
Illasúla og Hattfell

Time & Location

Oct 16, 2021, 7:00 AM – 8:00 PM

Iceland

Guests

About the Event

4. október: Langtímaveðurspá ekki hagstæð, metum fram eftir vikunni og frestum annars til 16.10 og þá færist Súlárdalur til 23.10. Varavaradagur er svo 30.10.

Frestum þessari ferð til laug 9. október. Vonum það besta með bílfærið og veðurfar. 

Uppfært 28. september - athuga staðfestingu á þeim sem voru á eldri dagsetningu:

 

Skráðir eru 26 manns: Ágústa H., Ásdís Hermanowicz gestur, Bára, Elísa, Gerður Jens., Guðný Ester, Gunnar Már, Gulla, Hafrún, Haukur, Hjördís, Jaana, Kolbeinn, Njóla, Oddný T., Sigrún E., Sigga Sig., Sigríður Lísabet, Sigurbjörg, Silla, Sjöfn Kr., Steinar A., Svala, Þorleifur, Þórkatla, Örn.

Laus 4 pláss. Hámark 30 manns.

Jeppar alls sex:

Örn, Bára, Jaana, Sigríður Lísabet.

Gunnar Már, Ágústa H., Silla, Sjöfn Kr. 

Kolbeinn, Elísa, Þórkatla, Sigga Sig.

Haukur, Sigrún E., Þorleifur, Gulla.

Hjördís, Sigurbjörg, Hafrún, Steinar A .

Njólu, Svölu, Gerði Jens., Guðný Ester, Oddnýju T. vantar jeppafar.

Afboðast v/breyttrar dagsetningar:  Bjarnþóra, Helga Rún, Inga Guðrún, Gylfi, Lilja Sesselja, Ása, Ólafur Vignir, Sigrún E., Gunnar Viðar, María E.

Tilkynning 10. sept: Frestum þessari ferð aftur um eina viku til laug 18. sept. þar sem Emstruleið er lokuð vegna vatnavaxta og veðurspá er ekki nægilega björt og góð fyrir þessa göngu. Helgrindur í staðinn ef nægur áhugi á því, sjá viðburð á vefsíðunni og fb. Jarlhetturnar sem áttu að vera 18. september víkja síðar fram á haustið. Vonum það besta með laugardaginn 18. september ! 

Tilkynning 3. september: Við frestum þessari ferð til 11.9 vegna veðurspár og vatnavaxta sem eru aftur að taka veginn í sundur. Þessi frestur þýðir að nokkrir komast ekki með næstu helgi miður. Þið eigið þá inneign en velkomið að fá endurgreitt, skrifið það þá hér undir eða sendið Erni tölvupóst. Ef ekki viðrar 11.9 þá munum við líklega fara 18.9 og færa Jarlhetturnar sem er brot á okkar meginreglu, en ástæðan er flóknara bílfæri en á Jarlhetturnar sem þola betur að færast lengra inn í haustið. Vonum það besta

Illasúla heillaði okkur upp úr skónum í fyrra þegar við gengum á hið mjög svo sjaldfarna Stóra Grænafjall við Álftavatn þar sem hún reis litrík og formfögur hinum megin við Markarfljótsgljúfrið... það var engin spurning að setja þetta fjall á dagskrá í ár... og þar sem Hattfellið er alveg í leiðinni keyrandi til baka... þá langar okkur að ganga á það líka... þar sem sú ganga er líka stutt í vegalengd en brattinn er mikill og því valkvætt hvort menn bæti því fjalli við og eins geta menn snúið við ef þeir vilja þegar ofar er komið, en það er án efa þess virði að fara langleiðina upp fjallið þó brattasta hlutanum sé sleppt eins og margir hafa gert í gegnum tíðina. 

Ekkert finnst á veraldarvefnum um göngu á Illusúlu og því eru líklega smalar að mestu eða eingöngu að ganga á það... það eru því alger forréttindi að ná að ganga á þetta  litríka, formfagra og einstaklega fallega fjall sem er staðsett er á mergjuðum stað á hálendinu við Markarfljótsgljúfur. 

Ferðasagan af Stóra Grænafjalli þar sem Illasúla skreytir landslagið mikið sem og Hattfell:

Tindferð 203 Litla og Stóra Græn (toppfarar.is) 

Nýjustu tilkynningar:

*Eingöngu farið í góðri veðurspá. Metum fram á fimmtudag eða föstudagsmorgun og tilkynnum þá brottför eður ei.

*Höfum föstudag og sunnudag sem varagöngudaga eftir veðri en helst laugardag (endurgreitt ef menn láta vita fyrirfram að þeir komast bara ákveðinn dag).

*Eingöngu jeppar og jepplingar fara í þessa ferð og bensínkostnaður deilist á farþega: viðmiðið er 1.500 kr fyrir hvern hálftíma í akstri sem deilist niður á alla í bílnum (bílstjóri undanskilinn bensínkostnaði ef farþegar eru fleiri en einn). Við ætlum ekki að fá rútu þar sem ekki fékkst nægur fjöldi í hana í fyrri ferðum í sumar, flestir vilja fara á jeppum og þar sem þetta er jepplingafært þá komast örugglega allir með. 

*Skráning eingöngu með greiðslu sem er óendurkræf við afboðun nema annar komi í staðinn ef uppselt var orðið í ferðina.

Verð:

Kr. 6.000 fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef bæði hjón/par/vinir mæta.

Kr. 8.000 fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 10.000 fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 588-5277 eða 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu sem er óendurkræf við afboðun eftir eftir 1. ágúst nema annar komi í staðinn.

Veðurspár:

www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norsrka veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál tilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng: Yr - Hattfell - Weather forecast 

Leiðsögn:

Þjálfarar.

Brottför:

Kl. 6:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl. 20:00  miðað við 3 klst. akstur x2 og 4-5 klst. + 2 klst. göngu.

Aksturslengd:

Um 3 klst. 

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um Suðurland á þjóðveg1 1 gegnum Hvolsvöll og beygt svo inn Fljótshlíðarveg F261 og áfram Emstruleið upp á hálendið, framhjá Hattfelli og Emstrum og yfir brúna á Innri Emstruá þar sem lagt er af stað gangandi. Sjá nánar síðar eftir könnunarleiðangur þjálfara í sumar. Jepplingar ættu að komast þessa leið, sjá nánar þegar nær dregur. 

Hæð: 

Um 700 m á Illusúlu og 917 m á Hattfell.

Hækkun: 

Um 300 m á Illusúlu miðað við 550 m upphafshæð og 470 m á Hattfelli úr 540 m hæð - alls 800 m á bæði fjöll.

Göngulengd: 

Um 9 km á Illusúlu frá Emstruleið og 3,5 km á Hattfell - alls um 13 km á bæði fjöll.

Göngutími: 

Um 4-5 klst. á Illusúlu og 2 klst. á Hattfell - alls um 7 klst. á bæði fjöll. 

Gönguleiðin: 

Mjög spennandi ganga á færi allra í sæmilegu gönguformi á mjög sjaldfarið fjall sem gefur fágætt og alveg einstaklega stórbrotið útsýni yfir Markarfljótsgljúfur og Álftavatn á Laugavegsgönguleiðinni. Gengið í sandi, möl, grjóti, grasi og mosa. Á Hattfelli er farið beint upp brattar brekkur í grasi, möl og mosa þar sem gæta þarf varúðar efst og hægt að snúa þar við ef menn treysta sér ekki alla leið. Gott ráð frá fyrri Hattfellsförum í fjallgönguklúbbnum er að vera með keðjubroddana meðferðis því þeir gefa gott hald í bröttu grasinu efst.  

Erfiðleikastig:

Um 2 af 6 eða fært öllum í ágætis gönguformi fyrir tvær frekar stuttar göngur á vel fært fjall til að byrja með (Illasúla) með magnaðri aðkomu um sjaldfarið svæði á hálendinu og svo á vel bratt fjall þar sem reynir aðeins á öryggi á tæpistigum (Hattfell). 

Búnaður:

Sjá upptalningu undir búnaður - farið vel yfir listann og passið að hafa allan tindferðabúnað meðferðis, góða skó, hlý föt, góðan hlífðarfatnað, vettlinga og höfuðfat og höfuðljós.

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

Sjá fb-viðburð hér: https://fb.me/e/2qdiYIvGp 

Share This Event

bottom of page