top of page

Kistufell Esju upp klettabeltið og niður Gunnlaugsskarð

Sun, Nov 26

|

Esjan, 162, Iceland

Kyngimögnuð leið á Kistufell Esjunnar um klettabeltið sunnan megin skemmtilega klöngurleið og eftir öllum suðurbrúnum þess áður en farið er niður um Gunnlaugsskarðið. Tilvalin dagsganga fyrir nýliða, þá sem elska klöngur og þá sem vilja styttri göngur um helgar.

Registration is Closed
See other events
Kistufell Esju upp klettabeltið og niður Gunnlaugsskarð
Kistufell Esju upp klettabeltið og niður Gunnlaugsskarð

Time & Location

Nov 26, 2023, 10:00 AM – 4:00 PM

Esjan, 162, Iceland

About the Event

Uppfært 23. nóvember 2023: 

Skráðir eru xmanns: + Örn þjálfari.

Nýjustu tilkynningar:

*Frábær veðurspá og mæting, logn, sól og hiti rétt yfir frostmarki, auð jörð og heiðskírt veður. 

*Fólksbílafært.

*Keðjubroddar nauðsynlegur búnaður allra og best að taka höfuðljósin með til öryggis þar sem það skyggir snemma. 

Verð:

Kr. 7.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi sem mættu í tindferð síðustu 2 mánuði eða ef báðir aðilar sem deila æfingagjöldum mæta. 

Kr. 9.000 kr. fyrir klúbbmeðlimi ef ofangreindur afsláttur gildir ekki.

Kr. 12.000 kr. fyrir gesti sem vilja prófa göngu með klúbbnum.

Greitt beint inn á reikning Toppfara ehf: 0114-26-58100. Kt: 581007-2210 eða með símgreiðslu á kreditkorti:

Örn í síma: 899-8185 og Bára í 867-4000 og tölvupóst orn-bokari(hjá)simnet.is eða baraket(hjá)simnet.is. 

Mjög mikilvægt er að skrifa í skýringu hvaða ferð er verið að greiða, nóg að setja nokkra stafi í nafni fjallsins svo skiljist.

Skráning og skilmálar:

Skráning eingöngu gild með greiðslu. Þeir sem eiga inneign meldi það inn eða sendið okkur skilaboð / póst. 

Athugið að við viljum helst alltaf endurgreiða við afboðun þó það sé með stuttum fyrirvara, en þó er ferð ekki endurgreidd við afboðun ef uppselt er í ferðina og fólki var vísað frá sem vildi skrá sig eða ef fáir voru skráðir og ferð hefði verið aflýst vegna ónógrar þátttöku.

Veðurspár:

Sjá www.vedur.is Skoðið staðaspár og veðurþáttaspár til að fá betri yfirsýn yfir vind, úrkomu og hita á svæðinu. Textaspá er réttari en myndaspá. www.belgingur.is er stundum nákvæmari. Sjá norska veðurspávefinn þar sem hægt er að skoða langtímaspá, helgarspá og klukkutímaspár, en taka þarf með í reikninginn að um fjallllendi er að ræða þar sem önnur lögmál gilda en á láglendi og oft er hæðartala á þessum vef röng. 

Leiðsögn:

Örn.

Brottför:

Kl. 10:00 á slaginu frá Össur, Grjóthálsi 5.

Heimkoma:

Um kl.  16:00.

Aksturslengd:

Um 20 mín. 

Akstursleiðarlýsing:

Ekið um þjóðveg 1, Vesturlandsveg gegnum Mosfellsbæ og þegar brúin yfir Leirvogsá í Mosó er að baki er fljótlega beygt til hægri inn Norðurgrafarveg um nýja iðnaðarhverfið og ekið að fjallsrótum Kistufells þar sem bílum er lagt (ath betur, sjá tilkynningu á Toppfarahópnum á fb. 

Hæð:

Um 843 m.

Hækkun:

Um 878 m miðað við 53 m upphafshæð.

Göngulengd:

Um 10 - 11 km en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Göngutími:

Um 5 klst. en fer endanlega eftir leiðarvali, veðri, færð og hópi.

Gönguleiðin:

Lagt af stað frá malarstæðinu við fjallsrætur upp þéttar grónar brekkurnar til að byrja með en ofar tekur klettabeltið við þar sem brölt er upp klettahjallana á suðausturhorninu alla leið upp. Þaðan er gengið uppi á brúnunum að suðvesturhorni Kistufells áður en farið er í Gunnlaugsskarð þar sem brölta þarf niður Gunnlaugsskarðið í grýttri brekku og farið um grónar hlíðarnar niður eftir og ofan við Kúpuhrygg og Kollafjarðarárgljúfur til baka í bílana. 

Erfiðleikastig:

Um 2 - 3 af 6 eða fært öllum í sæmilegu gönguformi fyrir stutta dagsgöngu frekar bratta leið en vel færa með heilmiklu brölti í klettum bæði á uppleið og niðurleið. 

Búnaður:

Alltaf skal taka með sér vatns- og vindheldar buxur og jakka,  hlýtt höfuðfat, ullar- og belgvettlinga, ullarföt innst, góða gönguskó með ökklastuðningi, kjarngott nesti og 1-2 L af vökva eftir vegalengd og tímalengd ferðar. Höfuðljós og keðjurbroddar eru nauðsynlegur búnaður allra að vetri til og aðstæður gætu krafist notkun jöklabúnaðar og ísaxar sem er nauðsynlegur búnaður allra sem vilja almennt ganga á fjöll að vetri til. 

Tryggingar:

Þátttakendur eru ekki tryggðir í göngunum og er bent á tryggingarfélögin í þessu sambandi. Toppfarar ehf tryggir hvorki þátttakendur né farangur þeirra. Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð og eru því hvattir til að kanna með eigin tryggingar.

FB-viðburður: 

Share This Event

bottom of page